

Fræðsludagskrá og viðburðir
Hér má finna fræðsludagskrá ársins 2026. Yfir sumartímann er boðið upp á fjölbreytta dagskrá gönguferða, fræðsluviðburða og viðburða með landvörðum á friðlýstum svæðum víða um land, auk þess sem stakir viðburðir eru haldnir yfir vetrartímann.


Umgengni um náttúru Íslands
Hvar má tjalda? Hvað er utanvegaakstur? Hvar má fljúga dróna? Má kannski ekkert?
Það eru vissulega umgengisreglur á friðlýstum svæðum landsins til að vernda þau um ókomna tíð - það gerum við öll saman.
Friðlýst svæði Íslands
Á Íslandi eru um 130 fjölbreytt friðlýst svæði og þar af þrír þjóðgarðar. Svæðin veita einstök tækifæri til að tengjast náttúrunni, hvíla hugann og dást að fegurðinni sem hver árstíð færir. Með friðlýsingu tryggjum við rétt okkar og komandi kynslóða til að njóta náttúrunnar og náttúran fær að njóta vafans. Reglur og aðgengi um friðlýst svæðis eru mismunandi eftir eðli þeirra.

Náttúruverndarstofnun
Þann 1. janúar 2025 tók stofnunin til starfa og tók við verkefnum náttúruverndar, lífríkis- og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun og starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar.

-2000x1125.png&w=3840&q=80)
-2000x1039.jpg&w=3840&q=80)


-2000x1126.jpg&w=3840&q=80)








-2000x1500.jpg&w=3840&q=80)

-2000x1001.png&w=3840&q=80)











