Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Landvarsla

Landverðir sem starfa við landvörslu sjá til þess að lögum og reglum sem koma fram í friðlýsingarskilmálum og stjórnunar- og verndaráætlunum, sé framfylgt á friðlýstum svæðum.

Hvað gera landverðir?

Landverðir starfa í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum víðs vegar um landið. Störf landvarða eru svipuð en þó ólík frá einu svæði til annars. Margbreytni starfsins ræðst meðal annars af fjölbreyttri náttúru, ólíkum gestum sem koma víðs vegar að og mismunandi aðstæðum á svæðunum. Á sumum svæðum starfar aðeins einn landvörður, á öðrum vinnur hópur þeirra. Landverðir hafa ólíka menntun og reynslu en áhugi á náttúru og náttúruvernd sameinar hópinn í starfi. Ráðningartími landvarða er mismunandi, töluvert hefur fjölgað í störfum heilsárslandvarða og jafnframt hafa tímabil yfir sumarmánuðina lengst. Mikið fjölgar í hópi landvarða yfir sumarmánuðina.

Ferðafólk í náttúru Íslands

Umgengni á friðlýs­tum svæðum

Mismunandi reglur gilda um umgengni á friðlýstum svæðum en það fer allt eftir verndargildi svæðanna og þeim reglum sem settar eru fram í bæði friðlýsingarskilmálum og stjórnunar- og verndaráætlunum. Í náttúruverndarlögum eru auk þess reglur um umgengni í náttúru Íslands.

Landvarðanámskeið

Vilt þú leggja náttúruvernd lið og vinna við landvörslu á friðlýstum svæðum á Íslandi? Náttúruverndarstofnun sér um landvarðanámskeið fyrir landverði sem haldin árlega.