Um leyfi
Á friðlýstum svæðum þarf leyfi Náttúruverndarstofnunar fyrir meðal annars kvikmynda- og ljósmyndaverkefnum, rannsóknum, viðburðum og framkvæmdum.
Sótt er um leyfi í gegnum þjónustugátt. Mikilvægt að sem ítarlegastar upplýsingar komi fram í umsókninni. Innheimt er fyrir vinnslu og afgreiðslu umsókna samkvæmt gildandi gjaldskrám. Afgreiðsla umsókna er 15-30 dagar og fer eftir tegund og umfangi umsóknar. Ekki má hefja verkefni áður en leyfi hefur verið gefið út.
Reglur um drónaflug á friðlýstum svæðum
Drónaflug á friðlýstum svæðum er almennt háð leyfi Náttúruverndarstofnunar.


Rannsóknarleyfi
Þau sem hafa hug á að stunda rannsóknir innan friðlýstra svæða, fylla út umsókn um leyfi í þjónustugátt. Í umsókninni þarf að koma fram lýsing á fyrirhuguðum rannsóknum sem óskað er leyfis fyrir og staðsetningu þeirra ásamt upplýsingum um tækjabúnað og aðferðferðafræði við rannsókn á svæðinu og tímasetningu.
Kvikmynda- og ljómyndatökuleyfi
Þau sem hafa hug á kvikmynda- og ljósmyndatöku innan friðlýstra svæða, fylla út umsókn um leyfi í þjónustugátt Náttúruverndarstofnunar. Í umsókninni þarf að koma fram lýsing á fyrirhuguðu verkefni sem óskað er leyfis fyrir og staðsetningu þess ásamt nákvæmum upplýsingum um fyrirkomulag og tímasetningu verkefnis.
Viðburðir
Hér er hægt að sækja um leyfi til þess að halda viðburði til dæmis íþróttamót, samkomur, brúðkaup, tónleikar, kvikmyndasýningar og fleira. Í umsókninni þarf að koma fram lýsing á fyrirhuguðum viðburði sem óskað er leyfis fyrir og staðsetningu hans ásamt nákvæmum upplýsingum um fyrirkomulag og tímasetningu.


Framkvæmdaleyfi á friðlýstum svæðum
Náttúruverndarstofnun er leyfisveitandi allra framkvæmda á friðlýstum svæðum. Sem dæmi um framkvæmdir má nefna allt jarðrask, lagning göngustíga, mannvirkjagerð og önnur innviðauppbygging. Friðlýsingarskilmálar og stjórnunar- og verndaráætlanir eru hafðar til grundvallar við leyfisveitingar ásamt lögum um náttúruvernd. Í umsókn þurfa að koma fram ítarlegar upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir.
Leyfi til aksturs utan vega
Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega. Náttúruverndarstofnun er heimilt að veita sérstakt leyfi til að aka utan vega vegna viðhalds skála og neyðarskýla, og vegna kvikmyndagerðar ef það er ekki hægt vinna þessi störf á annan hátt. Náttúruverndarstofnun sér um að veita leyfi til að aka utan vega vegna starfa við viðhald fjallaskála og neyðarskýla. Í umsókn þarf að koma fram nákvæm akstursleið sem sótt er um leyfi fyrir og skýringar á því hvers vegna ekki er hægt vinna þessi störf á annan hátt.