Aðgengi og upplýsingar
Gullfoss er staðsettur í uppsveitum Árnessýslu, við endan á Biskupstungnabraut (35) og við upphafið á Kjalvegi. Tvö bílastæði eru á svæðinu. Efra bílstæðið er fyrir almenna gesti en neðra er fyrir rútur og fyrir fatlaða. Frá efra bílastæðinu liggur gönguleið að útsýnispallinum ofan við fossinn. Einnig er göngustígur meðfram gljúfrinu að fossinum sjálfum. Við efra bílastæðið er Gullfosskaffi, veitingasala og minjagripaverslun.
Landvarsla er á svæðinu allan ársins hring.
Friðlýsing
Gullfoss ásamt gljúfrinu fyrir neðan fossinn og nærumhverfi hans vestan Hvítár voru friðlýst sem friðland árið 1979. Friðlandið er samtals 164,2 hektarar að stærð. Mikilvægt er að vernda Gullfoss svo að bæði vatnasvið hans og nærumhverfi haldist óskert. Gildi friðlandsins er fyrst og fremst fólgið í landslagi þess, mikilfenglegum jarðminjum og blómskrúðugu gróðurfari.
Samkvæmt aðferðafræði alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN) um flokkun friðlýstra svæða þá flokkast Gullfoss undir flokk III. Í þessum flokki eru svæði sem eru afmörkuð til að vernda sérstakar náttúruminjar sem geta verið landslagsfyrirbæri, neðansjávarfjöll, neðansjávarhellisskútar eða jarðminjar. Þessi svæði eru jafnan lítil og reiða sig oft á mun stærri svæði til að geta þrifist. Þetta á sérstaklega við í tilfellum fossa sem reiða sig á mun stærra vistkerfi enda hluti af stórum vatnasviðum sem nauðsynleg eru til að viðhalda rennsli þeirra.
