Náttúruverndarstofnun tók þátt í sautjánda aðildarríkjaþingi samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, COP17, sem fram fór í Jerevan í Armeníu dagana 19.–31. október. Fulltrúi stofnunarinnar sat í sendinefnd Íslands og tók einkum þátt í viðræðum um verndarsvæði. Á þinginu samþykktu aðildarríkin að hraða aðgerðum til að ná alþjóðlegum markmiðum um líffræðilega fjölbreytni fyrir árið 2030.
Verndarsvæði og hafvernd í brennidepli
Á þinginu var fjallað um áframhaldandi vinnu við verndarsvæði og hvernig þau geta stuðlað að því að markmið Kunming–Montreal-rammasamkomulagsins náist. Eitt þeirra er að tryggja skilvirka vernd og stjórnun á að minnsta kosti 30% land- og ferskvatnssvæða og 30% haf- og strandsvæða á heimsvísu fyrir árið 2030. Viðræðurnar um verndarsvæði snerust meðal annars um vistfræðileg tengsl milli svæða. Í umræðum um líffræðilega fjölbreytni í hafi var meðal annars fjallað um vísindalegan grundvöll hafverndar og samstarf við samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni á hafsvæðum utan lögsögu ríkja (BBNJ).
Þessi vinna tengist verkefnum Náttúruverndarstofnunar við skipulag og stjórnun verndarsvæða og þátttöku stofnunarinnar í samstarfi um verndarsvæði í hafi. Í aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni fyrir árin 2026–2030 eru verndarsvæði í hafi meðal fimm forgangsaðgerða. Í ávarpi Íslands á þinginu var lögð áhersla á að hér á landi væru nú stigin markviss skref í átt að vernd 30% hafsvæða.


Hraða þarf aðgerðum fram til 2030
Á þinginu var kynnt fyrsta heildarúttektin á framvindu 23 aðgerðamarkmiða Kunming–Montreal-rammasamkomulagsins. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir framfarir á undanförnum árum miðar aðgerðum of hægt til að markmiðin náist fyrir árið 2030. Aðildarríkin samþykktu í kjölfarið Yerevan-áætlunina (Yerevan Pathway), þar sem áhersla er lögð á að hraða framkvæmd, efla samstarf og styrkja vöktun og skýrslugjöf. Samantekt úr alþjóðlegu úttektinni State of Biodiversity Action
Ísland tilkynnti jafnframt á þinginu um 160 milljóna króna framlag á næstu fjórum árum til sjóðs rammasamkomulagsins (Global Biodiversity Framework Fund). Sjóðurinn styður þróunarríki við að ná markmiðum samkomulagsins.
