Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Rjúpna­veið­um lýkur á Norð­vest­ur­landi og Suð­ur­landi 17. nóvember

13.nóvember 2026

Tvær hvítar rjúpur sitja á steini

Þriðjudagurinn 17. nóvember er síðasti dagur rjúpnaveiðitímabilsins á Norðvesturlandi og Suðurlandi árið 2026. 

Náttúruverndarstofnun hvetur veiðimenn til að kynna sér vel mörk veiðisvæða áður en haldið er til veiða. Brögð hafa verið að því að veiðimenn við vestanverðan Eyjafjörð telji sig vera á veiðisvæði Norðausturlands. Það er ekki rétt: vestanverður Eyjafjörður tilheyrir veiðisvæði Norðvesturlands og þar lýkur veiðitímabilinu 17. nóvember. Eldri svæðamörk lágu enn austar og því þarf þetta ekki að koma á óvart. 

Veiðimenn eru hvattir til að skoða mörkin í kortasjá Náttúruverndarstofnunar og ganga úr skugga um á hvaða veiðisvæði þeir eru. Hægt er að opna hlekkinn í snjalltæki og virkja eigin staðsetningu.