Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Hlutverk og skipurit

Náttúruverndarstofnun vinnur að verndun og vöktun náttúru Íslands. Stofnunin þjónustar bæði náttúruna og samfélagið með því að stuðla að sjálfbærri nýtingu og auknum skilningi á náttúru landsins.

Hlutverk

Þann 1. janúar 2025 tók stofnunin til starfa og tók við verkefnum náttúruverndar, lífríkis- og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun og starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar.

Skipurit

Umdæmi

Friðlýstum svæðum er skipt upp á milli tíu umdæma sem eru eftirfarandi: 1. Vestfirðir 2. Snæfellsjökulsþjóðgarður og Vesturland 3. Mývatnssveit og Norðurland 4. Norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs 5. Jökulsárgljúfur Vatnajökulsþjóðgarðs 6. Austurland og Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 7. Suðursvæði (austur), Vatnajökulsþjóðgarðs 8. Suðursvæði (vestur) Vatnajökulsþjóðgarðs 9. Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs 10. Suðvesturland og Suðurland.