Það er sérstaklega ánægjulegt að heimamenn, Steinasteinn ehf. og Eyfell ehf., hafi annast verkið en þeir þekkja vel til staðhátta á svæðinu. Framkvæmdin var sameiginlegt verkefni Náttúruverndarstofnunar og sveitarfélaganna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum.
Verkið var sannkölluð þrekraun þar sem 30 kílóa steinklumpum var handborið upp 434 tröppur. Eftir því sem ofar dró varð landslagið sífellt erfiðara, grýtt og bratt, sem gerði bæði burðinn og vinnuna við borun og niðursetningu festinganna enn meira krefjandi. Alls var komið fyrir 32 nýjum festingum undir stigann til að styrkja undirstöður hans. Geri aðrir betur!

Framkvæmdirnar gengu vel og stiginn var opinn ferðamönnum allan tímann. Ferðamenn sýndu framkvæmdunum áhuga og voru jafnvel tilbúnir að rétta hjálparhönd við að bera steina upp tröppurnar.
Skógafoss er friðlýst náttúruverndarsvæði og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Stiginn er mikilvægur innviður á svæðinu og álagið á hann gríðarlegt vegna mikils fjölda gesta sem heimsækja fossinn ár hvert. Því er mikilvægt að sinna reglulegu viðhaldi og tryggja öryggi þeirra sem leið eiga um svæðið.

Steinasteinn ehf. og Eyfell ehf. eiga mikið hrós skilið fyrir vel unnið verk og gott framlag.
Kærar þakkir fyrir vel unnin störf!
