Á fundinum komu saman sérfræðingar frá aðildarríkjum OSPAR til að ræða stöðu og þróun verndarsvæða í Norðaustur-Atlantshafi, áskoranir við stjórnun þeirra og leiðir til að efla alþjóðlega samvinnu um verndun hafsins.
OSPAR-samningurinn er alþjóðlegur samningur um verndun Norðaustur-Atlantshafsins.
Ísland er eitt aðildarríkja samningsins og tekur virkan þátt í samstarfinu, meðal annars á sviði verndarsvæða í hafi.

Áhersla á árangursríka vernd og alþjóðlega samvinnu
Á fundinum var fjallað um fjölbreytt verkefni sem miða að því að efla vernd hafsvæða og tryggja að verndaraðgerðir skili tilætluðum árangri.
Meðal helstu umræðuefna voru:
- Þróun nets verndarsvæða í hafi, þar á meðal landfræðileg þekja þess, vistfræðileg tengsl milli svæða og þau svæði þar sem þörf er á aukinni vernd.
- Önnur svæðisbundin verndarúrræði (OECM) og hvernig þau geta stuðlað að verndun líffræðilegrar fjölbreytni samhliða friðlýstum svæðum.
- Verndun hafsvæða utan lögsögu ríkja, þar sem samstarf OSPAR við aðrar alþjóðastofnanir og viðeigandi stjórnvöld gegnir mikilvægu hlutverki.
- Nýr alþjóðasamningur um líffræðilega fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja (BBNJ) og hvernig innleiðing hans tengist núverandi svæðisbundnu samstarfi um hafvernd.

Fjölgun verndarsvæða í samræmi við aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni
Í aðgerðaáætlun Íslands um líffræðilega fjölbreytni 2026–2030 er sérstök aðgerð um verndarsvæði í hafi. Hún felur meðal annars í sér gerð vegvísis um fjölgun og stækkun verndarsvæða og skilgreiningu hafsvæða með virka svæðisvernd (OECM). Aðgerðin styður við markmið Íslands um að 30% hafsvæða verði undir skipulagðri vernd og stjórnun fyrir árið 2030.
Á fundinum kynnti fulltrúi Náttúruverndarstofnunar vinnu stýrihópsins og einnig var greint frá vinnu við tilnefningu hafsvæðanna við Látrabjarg og innan Gerpissvæðisins í verndarsvæðanet OSPAR og áformum um frekari uppbyggingu netsins af hálfu Íslands.

Mikilvægt samstarf fyrir verndun hafsins
Þátttaka Náttúruverndarstofnunar í starfi OSPAR er mikilvægur liður í alþjóðlegu samstarfi Íslands um verndun hafsins. Samstarfið stuðlar að miðlun þekkingar og reynslu milli ríkja, samræmingu verndaraðgerða og þróun aðferða til að meta árangur verndar.
Náttúruverndarstofnun mun áfram taka virkan þátt í starfi OSPAR og vinna að því að efla verndarsvæði í hafi, bæði hér á landi og á vettvangi alþjóðlegs samstarfs.
Hér má finna heimasíðu samningsins:
OSPAR Commission | Protecting and conserving the North-East Atlantic and its resources
