Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Rjúpna­veiðar hefjast föstu­dag­inn 23. október

Rjúpnaveiðar hefjast föstudaginn 23. október næstkomandi um landið allt.

22.október 2026

Tvær hvítar rjúpur í snjó

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Rjúpnaveiðar hefjast föstudaginn 23. október næstkomandi um allt land og er það þriðja árið sem veiðitímabilið er samkvæmt veiðistjórnunarkerfi stjórnunar- og verndaráætlunar sem samþykkt var af ráðherra 11. september árið 2024.

Fyrirkomulag

Stærsta breytingin sem fylgdi stjórnunar- og verndaráætlun er að nú hefur verið tekin upp svæðisbundin veiðistjórnun og því er veiðitímabilið mislangt eftir landshlutum (sjá veiðitímabil eftir svæðum hér). Það er á ábyrgð veiðimanna að kynna sér vel skiptingu veiðisvæða en það er hægt að gera á veiðum með því að nota kortasjá.

  • Opnið kortasjá í snjalltæki
  • Veljið þekju fyrir veiðisvæði
  • Virkið staðsetningu uppi í hægra horni

Með þessu móti er auðvelt að fylgjast með eigin staðsetningu með tilliti til marka veiðisvæða. Fyrir notendur staðsetningartækja eins og Garmin, þá er hér hægt að nálgast KLM skrá fyrir mörk veiðisvæða.

Vængjasöfnun

Aldursgreining úr afla er lykilbreyta við útreikninga á stofnstærð. Það er því mjög mikilvægt að safna slíkum gögnum. Náttúruverndarstofnun biðlar til veiðimanna að leggja Náttúrufræðistofnun lið við söfnun rjúpnavængja. Síðustu ár hefur vantað vængi frá Suður- og Vesturlandi og því eru veiðimenn þaðan sérstaklega hvattir til þess að senda inn vængi.

Skoða leiðbeiningar um söfnun rjúpnavængja hér

Fuglaflensa

Ný tilfelli skæðra tilfella fuglaflensu gefa tilefni til að ítreka fyrir veiðimönnum að hafa varann á og fylgja helstu leiðbeiningum sem má finna hér:

Frétt og upplýsingar um fuglaflensu