Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Veiði­tíma­bil rjúpu 2026 staðfest

11.september 2026

Rjúpa í móa

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögur Náttúruverndarstofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða fyrir árið 2026. Því til staðfestingar hefur verið gefin út reglugerðarbreyting 959/2026 á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.

Tillögurnar voru byggðar á stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem var gefin út árið 2024 og aðlögunarhæfum stofnlíkönum sem voru tekin upp samhliða því. Stofnmat rjúpu árið 2026 má nálgast neðst í fréttinni.

Veiðitímabil 2026

Veiðitímabilið er eftirfarandi (sjá einnig mynd að neðan):

Austurland                  23. október – 22. desember
Norðausturland         23. október – 1. desember
Norðvesturland         23. október – 17. nóvember
Suðurland                   23. október – 17. nóvember
Vesturland                  23. október – 1. desember
Vestfirðir                     23. október – 24. nóvember

Veiðitímabilið hefst föstudaginn 23. október á öllum veiðisvæðum. Veiði er heimil frá og með föstudegi til og með þriðjudags innan tímabils hvers veiðisvæðis. Því er óleyfilegt að veiða rjúpu miðvikudaga og fimmtudaga.

Veiðitímabil rjúpu 2026 - svæði og kort

Skipting veiðisvæða eftir landshlutum ásamt veiðitímabili hvers svæðis. Minnt er á að hægt er að nota kortasjá til að skoða mörk veiðisvæða.

Náttúruverndarstofnun biðlar sérstaklega til veiðimanna að sýna hófsemi við veiðar. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar komi að því hvatningarátaki. Sölubann á rjúpu er enn í gildi og veiðar óheimilar á Reykjanesi (Landnám Ingólfs).

Engin formleg athugasemd var send inn vegna tillagnanna.