Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun (MAST) hefur fuglainflúensa greinst í villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi frá miðjum september. Smit hefur einkum greinst í máfum og skúmum, en tilkynningum um veika og dauða fugla hefur fjölgað að undanförnu. Enn er óljóst hversu útbreitt smitið er.
Fuglainflúensa getur borist milli villtra fugla og valdið alvarlegum veikindum og dauða. Veiðimenn eru mikið á ferðinni í náttúrunni á þessum árstíma og geta því gegnt mikilvægu hlutverki við að greina möguleg smit og koma upplýsingum til viðeigandi yfirvalda.
Hvað þurfa veiðimenn að hafa í huga?
Náttúruverndarstofnun hvetur veiðimenn til að fylgja eftirfarandi ráðleggingum:
- Forðist að handleika veika eða dauða fugla sem finnast í náttúrunni. Tilkynnið slíka fundi til Matvælastofnunar.
- Veiðið ekki fugla sem sýna óeðlilega hegðun eða greinileg veikindamerki, svo sem jafnvægisleysi, skerta hreyfigetu eða óvenjulegt þróttleysi.
- Gætið hreinlætis við meðhöndlun veiðibráðar. Notið hanska við verkun, þvoið hendur og hreinsið áhöld og yfirborð sem komast í snertingu við fugla.
- Haldið veiðihundum frá veikum og dauðum fuglum. Forðist að hundar éti fuglahræ eða komist í snertingu við fugla sem grunur leikur á að séu smitaðir.
- Tilkynnið óvenjulegan fjölda dauðra fugla, sérstaklega ef margir fuglar finnast á sama svæði.
Fuglainflúensa getur einnig borist í spendýr
Fuglainflúensa er fyrst og fremst sjúkdómur fugla en veiran getur einnig borist í spendýr. Smit hefur meðal annars greinst í refum og köttum hérlendis.
Veiðimenn sem nota hunda við fuglaveiðar ættu því að sýna sérstaka aðgát. Ekki ætti að leyfa hundum að éta fuglahræ eða sækja fugla sem sýna merki um veikindi. Ef hundur veikist eftir mögulega snertingu við smitaðan fugl er rétt að hafa samband við dýralækni.
Mikilvægt að tilkynna grunsamlega fugla
Veiðimenn geta lagt mikið af mörkum til vöktunar fuglainflúensu með því að tilkynna um óvenjuleg afföll eða veikindi meðal villtra fugla. Slíkar upplýsingar hjálpa Matvælastofnun að fylgjast með útbreiðslu veirunnar og bregðast við eftir þörfum.
Náttúruverndarstofnun hvetur veiðimenn til að fylgjast með upplýsingum og leiðbeiningum Matvælastofnunar um fuglainflúensu.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á vef Matvælastofnunar.
