Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Tækifæri til bættrar veiði­stjórn­unar á ref og mink

29.júlí 2026

Minkur á sundi

Myndir í frétt: Jóhann Óli Hilmarsson

Markmið veiðistjórnunar á ref og mink er að takmarka tjón og vernda lífríki og því er mikilvægt að endurskoða veiðistjórnunaraðgerðir eftir atvikum. Náttúruverndarstofnun telur að rétt sé að skoða hvort ná megi betri árangri í veiðistjórnun á ref og mink þar sem vinna þarf heildstæðar stjórnunar- og verndaráætlanir (einungis stjórnunaráætlun í tilfelli minks), en þær eru ekki til í dag. Í því ferli er nauðsynlegt að safna frekari gögnum og eiga samráð við hagsmunaaðila. Engar tillögur eru uppi um heildstæða friðun á ref.

Stefnt er að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir ref á næstu árum. Slík áætlun verður unnin í samráði við alla helstu hagsmunaaðila. Forsenda slíkrar vinnu er að fyrir liggi upplýsingar um stöðu stofnins sem eru væntanlegar frá Náttúrufræðistofnun á næstunni. Slík áætlun felur m.a. í sér mat á árangri ólíkra leiða hvað varðar markmið um takmörkun tjóns og verndun lífríkis.

Mikilvægt er að hafa í huga að ólík sjónarmið liggja að baki veiðistjórnun á mink og ref. Minkurinn er ágeng tegund í íslenskri náttúru og markmið um að halda honum niðri eða útrýma. Refur var í íslenskri náttúru áður en menn settust hér að og hefur því verndargildi. Taka þarf mið af þessum ólíku markmiðum í veiðistjórnun. Núverandi veiðistjórnun þessara tveggja tegunda er samofin og þarf að skerpa betur á milli þeirra.

Ítarupplýsingar

Ein ástæða þess að lögð er til endurskoðun á veiðistjórnun minks og refs er að fáar tilkynningar um tjón hafa borist undanfarin ár. Náttúruverndarstofnun hvetur þá sem verða fyrir tjóni vegna þessara tegunda að tilkynna það til viðkomandi sveitarfélags.

Veiðistjórnun á ref og tjónatilkynningar

Veiðistjórnun á mink

Refur situr á steini
Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson