Fyrirkomulag veiða
Mörg sveitarfélög eru með samninga við minkaveiðimenn sem fá greitt frá sveitarfélaginu fyrir hvert unnið dýr. Samkvæmt lögum endurgreiðir Náttúruverndarstofnun allt að helmingi kostnaðar sveitarfélaga við minkaveiðar, háð fjárlögum og kostnaði við refaveiðar.

Vöktun og rannsóknir
Engin skipulögð vöktun er á minkastofninum hér á landi. Árin 2019 og 2020 var gerð tilraun til vöktunar á stofninum en hún fjaraði út vegna skorts á fjármagni.
Náttúrustofa Vesturlands hefur rannsakað tegundina töluvert og eiga til mikið af áhugaverðu efni. Lesa má meira um rannsóknir á mink á vefsíðu Náttúrustofunnar, en hún tók um tíma við hræjum frá veiðimönnum og hefur gefið út skýrslu um rannsóknarniðurstöður þeirrar vinnu. Vekja má sérstaklega athygli á viðaukanum aftast í skýrslunni þar sem bent er á frekara lesefni um minka á Íslandi og rannsóknir á honum. Náttúrustofan tekur ekki lengur við minkahræjum.
Minkur er skilgreindur sem ágeng tegund á Íslandi og hefur mikil áhrif á íslensk vistkerfi. Á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar má fræðast meira um tegundina.

Lög og reglugerðir
Um veiðar á dýrum í náttúru Ísland gilda almennt lög númer 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. 13. grein laganna fjallar um minka.
Einnig hefur verið sett sérstök reglugerð um refa- og minkaveiðar, númer 437/1995.
Viðmiðunartaxtar
Hægt er að skoða viðmiðunartaxta launa, verðlauna og aksturs fyrir unna refi og minka með því að smella á örina hér að neðan.
