Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Stjórn­unar- og vernd­ar­áætl­un fyrir Kerl­ing­ar­fjöll lögð fram til kynn­ingar

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið Kerlingarfjöll hafa verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

10.apríl 2026

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið Kerlingarfjöll hafa verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

Kerlingarfjöll voru fyrst friðlýst sem landslagsverndarsvæði árið 2020 með auglýsingu nr. 822/2020.

Friðlýsingin er í samræmi við 3. og 50. gr. - laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Landslagsverndarsvæðið fellur í tvo flokka samkvæmt skilgreiningu Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna UICN, annars vegar flokk V, verndað landslag og hins vegar flokk VI, verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu.

Áætlunin er unnin af samstarfshópi en í hópnum sitja ásamt fulltrúum Náttúruverndarstofnunar: fulltrúi Hrunamannahrepps, fulltrúi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, fulltrúi Forsætisráðuneytis og fulltrúi Náttúrufræðistofnunar. Jafnframt hefur, í vinnsluferli áætlunarinnar, verið fundað með helstu hagsmunaaðilum sem tengjast svæðinu.

Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára.

Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Nánari upplýsingar er að fá hjá svæðissérfræðingi, Valdimari Kristjánssyni netfang: valdimar.kristjansson@nattura.is eða sérfræðingi, Sif J. Ástudóttur, netfang: sif.j.astudottir@nattura.is

Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni en aðkoma hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur til að skapa sátt um daglegan rekstur og framtíð friðlýstra svæða.

Opinn kynningarfundur um áætlunina verður haldinn síðar, nánari upplýsingar verða auglýstar þegar nær dregur

Athugasemdum skal skilað með tölvupósti til Náttúruverndarstofnunar (nattura@nattura.is) eða bréfleiðis með utanáskriftinni: Náttúruverndarstofnun, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur.

Skilafrestur athugasemda er til og með 25. maí 2026.