Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Kerl­ing­ar­fjöll

Kerlingarfjöll eru mikill fjallabálkur á miðhálendi Íslands, rétt sunnan Hofsjökuls

Kerlingarfjöll eru mikill fjallabálkur á miðhálendi Íslands sem nær yfir um 140 km² svæði suðvestan Hofsjökuls.

Kerlingarfjöll rísa hátt yfir annars nokkuð sléttum og víðáttumiklum Hrunamannaafrétti og setja sterkan svip á landið þegar ekið er yfir Kjöl. Öræfin umhverfis fjöllin eru að jafnaði í 600-700 metra hæð yfir sjávarmáli en hæstu tindar Kerlingarfjalla gnæfa snarbrattir yfir svæðinu í yfir 1400 metra hæð.

Hæstu fjöllin á svæðinu eru í Austurfjöllum – Snækollur (1488 m), Fannborg (1458 m) og Loðmundur (1429 m). Vesturfjöll eru ívið lægri, en til þeirra teljast m.a. Höttur (1312 m), Mænir (1357 m) og Ögmundur (1357 m).

Fjallaklasinn í heild nær yfir um 140 km², en verndarsvæðið er 367 km². Árnar Ásgarðsá og Kisa renna frá fjöllunum og skipta þeim upp í tvo hluta, Austur- og Vesturfjöll.

Fjalllendið dregur nafn sitt af 25 metra háum móbergsdranga sem stendur upp úr ljósgrýtisskriðum Kerlingartinds, en aðalsteintegundir fjallanna eru móberg og ljósgrýti (líparít).

Aðgengi og þjónusta

Friðlýsing

Sumarið 2020 voru Kerlingarfjöll friðlýst sem landslagsverndarsvæði. Markmið friðlýsingarinnar eru að vernda jarðminjar, landslag, óbyggðir og ásýnd svæðisins. Með friðlýsingunni er tryggt að ekki sé gengið á auðlindir verndarsvæðisins og að nýting innan þess spilli ekki jarðminjum, landslagi eða ásýnd. Annað markmið friðlýsingarinnar er að efla Kerlingarfjöll sem útivistarsvæði og stuðla að góðri umgengni og bættu aðgengi að svæðinu.