
Stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu er sú fyrsta sinnar tegundar fyrir dýrastofn á Íslandi. Hún er mikilvægur liður í því að stuðla að sjálfbærum veiðum og að rjúpnastofninn haldi sínu hlutverki sem lykiltegund í sínu vistkerfi.

Stjórnunar- og verndaráætlun lunda
Vinna við gerð stjórnunar- og verndaráætlun lunda fór af stað árið 2023 með vinnustofu. Markmið vinnustofunnar var að móta sameiginlega sýn á verkefnið og tilgreina helstu þætti stefnumótandi stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir stofninn ásamt því að greina helstu hagsmunaaðila. Niðurstöður vinnustofunnar má lesa í tenglinum hér að neðan.

Stjórnunar- og verndaráætlun hreindýra
Vinna við stjórnunar- og verndaráætlun hreindýra hófst í ársbyrjun 2026 og stefnt er að því að klára vinnuna innan 18 mánaða í samráði við helstu hagsmunaaðila. Vinnustofa var haldin í maí 2026 og samantekt frá henni má nálgast í gegnum hlekkinn hér að neðan.

Stjórnunar- og verndaráætlun helsingja
Ísland er aðili að AEWA, sem er alþjóðlegur samningur um verndun afrísk-evrasískra sjó- og vatnafugla, þar á meðal helsingja. Evrópski gæsastjórnunarhópurinn (EGMP), undir hatti AEWA, hefur gefið út stjórnunaráætlun fyrir helsingja, þar á meðal Austur-Grænlandsstofninn sem er sá stofn sem verpir eða kemur við hér á landi.

Stjórnunar- og verndaráætlun stuttnefju
Alþjóðleg stjórnunaráætlun fyrir stuttnefju í N-Atlantshafi er verkefni innan sjófuglasérfræðisviðs (CBird) CAFF. Markmið verkefnisins er að bæta skilning á og bregðast við hnignun í nokkrum stofnum stuttnefju og koma útbreiðsluríkin Kanada, Grænland, Ísland og Noregur að því. Vinnustofa með hagsmunaaðilum verður haldin á Íslandi í janúar 2026.
