Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Málþing um stöðu og nýtingu sjófugla gekk vel

16.október 2026

Upptökur frá málþingi um stöðu og nýtingu sjófugla

Misstir þú af málþinginu eða vilt kynna þér erindin betur? Upptökur af fyrirlestrum málþingsins, sem haldið var 12. október, eru nú aðgengilegar á netinu.

Mánudaginn 12. október síðastliðinn var haldið málþing um stöðu og nýtingu sjófugla við Ísland. Málþingið var skipulagt af Náttúruverndarstofnun með aðstoð Hafrannsóknastofnunar, Náttúrufræðistofnunar, Náttúrustofa Suðurlands- og Norðausturlands og Dr. Freds Johnson, ásamt ráðleggingum frá fulltrúum helstu hagsmunaaðila. 

Sjófuglar eru mikilvægur hluti íslenskrar náttúru og Ísland ber ríka ábyrgð á mörgum stofnum þeirra. Flestum íslenskum sjófuglastofnum hefur fækkað á undanförnum áratugum, þótt staða og þróun sé mismunandi eftir tegundum og svæðum. Breytingar á lífríki hafsins og fæðuframboði, meðal annars í tengslum við loftslagsbreytingar, eru hluti af þeirri mynd. Því er mikilvægt að byggja ákvarðanir um vernd og nýtingu á þekkingu á hverri tegund og taka jafnframt mið af þeirri óvissu sem enn er til staðar. 

Við skipulagningu var samhljómur um að mikilvægt væri að hagsmunaaðilar fengju rými til þess að tjá sín sjónarmið og veita þær upplýsingar sem þeir búa yfir, en margir þeirra eru í miklum tengslum við sjófuglastofna og búsvæði þeirra úti á örkinni. Sex fulltrúar þeirra þáðu boð um þátttöku, þ.e. SKOTVÍS, Fuglavernd, Bjargveiðimannafélag Vestmannaeyja, Drangeyjarfélagið, Landeigandafélagið Bjargtangar og Samtök ferðaþjónustunnar.  

Fyrirlestrar og erindi 

Erindi hagsmunaaðila voru fjölbreytt og sneru að skotveiðum svartfugla, vernd fuglastofna, háfaveiðum lunda, eggjatöku og ferðamennsku. Þá sögðu opinberu stofnanirnar Náttúruverndarstofnun og Hafrannsóknastofnun frá sínu hlutverki og verkefnum tengdum sjófuglum, Náttúrustofurnar fluttu fyrirlestra um vöktun tegundanna og rannsóknir tengdum þeim og Dr. Fred Johnson flutti tvo fyrirlestra um annars vegar mat á veiðiþoli og sjálfbærni stofna við óvissar umhverfisaðstæður og hins vegar hvernig nýta má veiðistjórnun til lærdóms og bætinga á verkferlum og samskiptum. 

Fyrirlesarar dagsins sátu einnig fyrir svörum í pallborði þar sem líflegar umræður áttu sér stað. Þar voru aðilar, jafnt í pallborðinu sem og í áhorfendahópnum, ekki alltaf sammála en umræður voru uppbyggilegar, ýmislegt fróðlegt kom þar fram og fóru langflestir sáttir frá borði eftir daginn. 

Framhaldið 

Náttúruverndarstofnun vinnur nú að uppgjöri málþingsins. Fyrirlestrar málþingsins hafa verið klipptir niður og birtir – þeir eru aðgengilegir hér að ofan. Stutt skýrsla verður unnin og send umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, en ráðuneytið kostaði málþingið. Náttúruverndarstofnun heldur áfram að koma stjórnunar- og verndaráætlunum í réttan farveg og var málþingið mikilvægur liður í því að skilja sjónarmið hagsmunaaðila, greina forsvarsmenn hagsmunahópa og hvaða ágreiningsefni eru líklegust til þess að koma upp í þeirri vinnu.  

Veiðistjórnun er ekki einungis leikur að tölum, enda hefur hver tegund mismunandi gildi innan síns vistkerfis sem og í samfélaginu sjálfu, hvort sem þá er menningar- eða efnahagsleg. Þó er það grundvallarforsenda veiðistjórnunar – líkt og fram kom á málþinginu – að þær tölur sem nýttar eru við veiðistjórnun séu eins réttar og mögulegt er. Á það við um uppgefna veiði í veiðiskýrslum sem og tölfræði sem fæst úr vöktun og rannsóknum.