Útgáfu plastveiðikorta hætt
Náttúruverndarstofnun mun ekki lengur gefa út plastveiðikort, í samræmi við það sem auglýst var á síðasta ári. Lesa meira
Skila veiðiskýrslu og endurnýja veiðikort
Veiðikorthafar skulu skila veiðiskýrslu, hvort sem veitt var eða ekki, og eins þó ætlunin sé ekki að endurnýja veiðikortið.
Hvatt er til skýrsluskila fyrir 1. apríl því eftir þann tíma hækkar gjald fyrir veiðikort úr 3.500 í 5.000 krónur.
Skýrslunni er skilað og veiðikortið endurnýjað á skilavef veiðimanna.
Veiðikort fyrir erlenda veiðimenn (ATH sérreglur um hreindýr í textanum)
Erlendir veiðimenn sem hyggjast veiða á Íslandi þurfa að fá útgefið veiðikort hér á landi. Ábyrgðarmenn þeirra geta sótt um það í gegnum þjónustugátt í hlekknum hér að neðan.
Hreindýraveiðileyfi erlendra veiðimanna: Líkt og fyrir önnur hreindýraveiðileyfi er sótt um leyfi fyrir erlenda hreindýraveiðimenn í gagnagátt stofnunarinnar, sem er aðgengileg hér. Með umsókninni þarf að fylgja afrit af veiðikorti veiðimannsins frá hans heimalandi, skotvopnaleyfi þar sem sést að viðkomandi hafi leyfi á stóra riffla og vegabréf. Umsóknarfrestur fyrir hreindýraveiðileyfi er 2. mars 2026.
Frekari upplýsingar
Áhugasömum er bent á upplýsingar á vefnum um veiðiskýrslur, veiðikort og námskeið vegna veiðikorta og skotvopnaleyfis sem eru aðgengilegar í hlekknum hér að neðan.
