Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Nátt­úru­vernd­ar­stofn­un hættir útgáfu plast­veiði­korta

Heiðagæsahópur á flugi

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um endurnýjun veiðikorts 2026 og veiðiskýrsluskil. Náttúruverndarstofnun mun ekki lengur gefa út plastveiðikort, í samræmi við það sem auglýst var á síðasta ári. Þetta er liður í því að draga úr plastnotkun og minnka umhverfisáhrif, auk þess sem tækniframfarir og rafrænar lausnir gera slíka breytingu ákjósanlega.

Öll þau sem voru með veiðikort 2025 eru hvött til að skila inn veiðiskýrslu fyrir 1. apríl því sé veiðiskýrslu skilað eftir þann tíma hækkar gjaldið fyrir veiðikort úr 3.500 krónum í 5.000 krónur.

Veiðiskýrslur og endurnýjun fara enn fram í gegnum skilavefinn.

Hvernig geymi ég eða framvísa veiðikorti?

Rafrænt veiðikort → aðgengilegt á Ísland.is  og Ísland.is appinu → skírteini

PDF veiðikort → tölvupóstur/vistað í síma

PDF veiðikort → tölvupóstur → prenta út A4

Plastveiðikort (gamalt) með QR → hægt að skanna með snjallsíma sem vísar á síðu sem sýnir gildistöðu veiðikortsins á hverjum tíma.