Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Leið­rétt­ing í ljósi umræðu um dróna­flug á frið­lýst­um svæðum

Náttúruverndarstofnunar vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.

10.júní 2026

Í ljósi umræðu um drónareglur á friðlýstum svæðum í umsjón Náttúruverndarstofnunar vill stofnunin koma eftirfarandi á framfæri. 

Náttúruverndarstofnun tekur undir mikilvægi hlutverks atvinnuljósmyndara og annars fagfólks sem miðlar íslenskri náttúru til almennings hérlendis sem erlendis.  

Náttúruverndarstofnun hefur fengið réttmætar ábendingar um að upplýsingar á heimasíðunni hafi ekki verið fullnægjandi og hafa upplýsingarnar verið uppfærðar í fyrri frétt og einnig á upplýsingasíðu um drónaflug hér

Rétt er að taka fram að meginmarkmiðið með breyttri framkvæmd var að draga úr umferð dróna í afþreyingarskyni sem hefur aukist undanfarin misseri. Stofnunin áréttar að sem fyrr geta ljósmyndarar sótt um leyfi til notkunar dróna á tilteknum friðlýstum svæðum að uppfylltum skilyrðum. Mikilvægt er við þessa framkvæmd að finna jafnvægi milli umferðar, náttúruupplifunar og náttúruverndar. 

Stofnunin mun á næstu dögum funda með félagi atvinnuljósmyndara Íslands til að ræða nánari framkvæmd drónaljósmyndunar.