Náttúruverndarstofnun tilkynnir breytta stjórnsýsluframkvæmd við afgreiðslu umsókna um flygildi/dróna á friðlýstum svæðum sem tók gildi þann 17. maí 2026.
Til verndar lífríki, upplifunar og kyrrðar á tilteknum friðlýstum svæðum, sjá hér, þar sem flug flygilda/dróna er óheimilt, veitir Náttúruverndarstofnun nú einungis leyfi fyrir notkun þeirra í atvinnuskyni, t.d. vegna rannsókna, vöktunar, eftirlits, framkvæmda, kvikmyndatökuverkefna (s.s. kvikmyndagerð, auglýsingar, sjónvarpsþættir og í fréttaskyni), atvinnuljósmyndunar og leyfisskyldra viðburða. Sótt er um slík leyfi í gegnum island.is. Stofnunin veitir ekki leyfi til notkunar dróna vegna annarra verkefna.. Sótt er um slík leyfi í gegnum island.is.
Fréttin hefur verið uppfærð - 10. júní 2026
