Umsóknarfrestur
Náttúruverndarstofnun annast sölu hreindýraveiðileyfa. Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 2. mars. Útdráttur verður auglýstur síðar.
Veiðiheimildir
Heimilt er að veiða allt að 936 hreindýr árið 2026, 499 kýr og 437 tarfa. Þessi fjöldi er með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum.
Gjald
Veiðileyfagjaldið árið 2026 er kr. 241.600 fyrir tarf og kr. 137.700 fyrir kú. Veiðileyfagjaldið greiðist eigi síðar en 15. apríl.
Veiðitímabil
Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til og með 15. september. Á tímabilinu 15. júlí til 1. ágúst er veiði á törfum einungis heimiluð að því tilskildu að þeir séu ekki í fylgd með kúm og að veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.
Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til og með 20. september. Þeim eindregnu tilmælum er beint til veiðimanna að fyrstu tvær vikur veiðitíma skulu veiðimenn og leiðsögumenn í lengstu lög forðast að fella mylkar kýr og veiða eftir fremsta megni geldar kýr. Þessum tilmælum er ætlað að draga úr áhrifum veiða á kálfa og stuðla að því að kálfar verði ekki móðurlausir fyrir 12 vikna aldur.
Sérstök tilmæli
Í því skyni að draga úr líkum á að hreindýrin á veiðisvæði 9 leiti milli sauðfjárveikivarnahólfa yfir í Öræfi skal eftir fremsta megni reynt að veiða sem stærstan hluta kvótans vestast á svæðinu í Suðursveit. Tilmælum þessum er einnig ætlað að stuðla að fækkun hreindýra sem gengið hafa á Breiðamerkursandi og valdið þar skemmdum á viðkvæmum gróðri.
Á tímabilinu 1. nóvember til og með 30. nóvember eru veiðar á 40 kúm heimilaðar á svæði 8. Í umsókn um veiðileyfi er valið um veiði á hefðbundnum veiðitíma eða nóvemberveiðitíma.
Umsóknir fyrir erlenda veiðimenn
Líkt og fyrir önnur hreindýraveiðileyfi er sótt um leyfi fyrir erlenda hreindýraveiðimenn í gagnagátt stofnunarinnar, sem er aðgengileg hér. Með umsókninni þarf að fylgja afrit af veiðikorti veiðimannsins frá hans heimalandi, skotvopnaleyfi þar sem sést að viðkomandi hafi leyfi á stóra riffla og vegabréf. Umsóknarfrestur fyrir hreindýraveiðileyfi er 2. mars 2026.
Veiðiheimildir eftir svæðum
Veiðiheimildir árið 2026 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:
Tillaga að hreindýrakvóta fyrir árið 2026 - Nattúra

