Náttúruverndarstofnun skilaði tillögu að hreindýrakvóta fyrir veiðiárið 2026 til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins föstudaginn 19. desember síðastliðinn. Tillagan byggir á ráðgjöf Náttúrustofu Austurlands og niðurstöðum vöktunar og talninga á hreindýrastofninum á Austurlandi.
Lagt er til að heildarkvóti fyrir árið 2026 verði 936 dýr, sem er aukning um 271 dýr frá fyrra ári. Aukningin skýrist fyrst og fremst af því að óvissa um stofnstærð hefur minnkað verulega eftir endurteknar vetrar- og sumartalningar árin 2024 og 2025. Ný gögn benda til þess að stofninn sé stærri og framleiðni meiri á sumum svæðum en áður var talið, einkum á veiðisvæðum 2, 7 og 8, þar sem einnig hefur verið vart við aukið beitarálag.
Helstu breytingar í tillögunni felast í hækkun kvóta á þeim svæðum þar sem þéttleiki dýra í vetrarbeit er orðinn hár, ásamt breytingum á skiptingu kúakvóta milli einstakra svæða til að jafna álag til lengri tíma. Jafnframt er lögð áhersla á að auka veiðiálag varlega og halda því áfram undir almennum viðmiðum, á meðan áfram er unnið að bættri þekkingu á dreifingu og fari dýra milli svæða.
