Viltu fræðast um hörfandi jökla, villt blóm, víðerni og fossa? Tengjast friðlýstum svæðum, fá innblástur og njóta fersks lofts?
Fræðsludagskrá Náttúruverndarstofnunar fyrir árið 2026 er komin út og þar má finna fjölbreytta dagskrá fyrir öll sem vilja kynnast náttúru landsins betur.
Í sumar bjóða landverðir í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum gestum upp á fræðslugöngur, barnastundir og fjölbreytta viðburði þar sem náttúra, saga og sérkenni svæðanna eru í forgrunni. Í gestastofum þjóðgarðanna og víðar er einnig hægt að fá upplýsingar og skoða sýningar um einstaka náttúru og verndargildi hvers svæðis.
Skoða fræðsludagskrá Náttúruverndarstofnunar 2026
Dagskráin er gjaldfrjáls og öll eru velkomin.
Kíktu við á leiðinni, við hlökkum til að taka á móti þér!
-2000x1125.png&w=3840&q=80)