

Breiðamerkursandur - Vatnajökulsþjóðgarður
Fræðslutímabil 1. júní til 30. september
Jökulsárlón
Bláa gullið
Bekkirnir við lónsbakkan við aðalbílastæðið við Jökulsárlón
Alla daga kl. 11:00
Lengd: 1 klst
Sérstaða Jökulsárlóns rædd í göngu um bakka lónsins og rýnt í landslagið og hvernig það breytist þegar jökullinn hörfar. Samspili fólks og náttúru velt upp og því hvernig Breiðamerkursandur hefur farið frá því að vera með fáfarnari stöðum landsins í einn vinsælasta áningarstað ferðafólks á Íslandi.
Tímabil 15. júní - 15. ágúst
Fjallsárlón
Fjallað um Fjall
Vesturströnd gönguleiðarinnar við Fjallsárlón
Alla daga kl. 15:00
Lengd: 45 mín
Gengin hringleið við Fjallsárlón og fjallað um sambúð manns og náttúru á svæðinu ásamt áhrifum vatns, jökuls og eldgosa á Breiðamerkursandi. Hvernig var eitt afskekktasta svæði Íslands fyrr á öldum? Hver voru þessi margumtöluðu Kvískerjasystkini og fyrir hvað urðu þau þekkt?
Viðburðir
31. júlí - Alþjóðadagur landvarða klukkan 11:00
16. September – Dagur íslenskrar náttúru klukkan 11:00
11. október – Hreindýradagurinn klukkan 11:00
16. nóvember - Dagur íslenskrar tungu klukkan 11:00
Aðventuhelgar í desember
(5. og 6., 12. og 13., 19. og 20.)
Kaffi og fræðsla hjá eldstæði við Jökulsárlón frá 10:00 til 12:00


Skaftafell - Vatnajökulsþjóðgarður
Fræðslutímabil: 15. júní - 15. ágúst
Fjölskyldustundir
Skaftafellsstofa
Allar helgar frá 4. júlí – 3. ágúst kl. 11:00
Lengd: 45 mín
Fyrir alla krakka á aldrinum 6-12 ára og fjölskyldu þeirra. Leikir og náttúruskoðun með landverði. Hittumst í hress og kát í Skaftafellsstofu!
Hörfandi jöklar
Skaftafellsstofa
Alla daga kl. 10:30
Lengd: 1 - 1 ½ klst
Gengið er að Skaftafellsjökli og áhrif jökla á landslagið rædd og hvaða áhrif við höfum á jöklana.
Búseta í návígi jökla
Skaftafellsstofa
Alla daga kl. 14:00
Lengd: 1 ½ - 2 klst
Menning, saga og samspil manna og náttúrunnar endurspegluð í göngu um sögu Skaftafells.
Viðburðir
14. júní - Dagur hinna villtu blóma klukkan 13:00
27. júní - Fjölskyldustund klukkan 11:15
31. júlí - Alþjóðadagur landvarða - landvarðaleikar klukkan 11:00
8. ágúst - hinsegin ganga/gleðiganga - klukkan 11:00
16. september - Dagur íslenskrar náttúru klukkan 13:00
31. október - Hræðsluganga klukkan 17:00
16. nóvember - Dagur íslenskrar tungu klukkan 13:00
12. desember - Jólasveinaganga klukkan 11:00
Verslunarmannahelgin:
31. júlí Hamfaraganga klukkan 22.00
1. ágúst ratleikur fyrir alla, stóra sem smáa
2. ágúst Brenna og söngur klukkan 21.00
%20(2)-2000x1429.png&w=3840&q=80)
Kirkjubæjarklaustur - Vatnajökulsþjóðgarður
Fræðslutímabil 15. júní - 15. ágúst
Fjölskyldustundir
Skaftárstofa
Alla laugardaga og sunnudaga kl. 13:00 frá 15. júní - 15. ágúst
Lengd: 30 mín
Leikir og náttúruskoðun með landverði. Hittumst hress og kát.
Margt býr í hólunum
Skaftárstofa
Mánudaga til föstudaga kl. 13:00
Lengd: 1 klst
Gengið er inn í Landbrotshólana þar sem fölbreytni náttúrunnar og nýtingarmöguleikar hólanna eru skoðaðir.
Fjaðrárgljúfur
Móberg, mosi og maður
Bílastæðið við Fjaðrárgljúfur
Alla daga kl. 11:00
Lengd: 1 klst
Gengið um nágrenni Fjaðrárgljúfurs.
Viðburðir
31. Júlí - Alþjóðadagur landvarða, landverðir bjóða upp á kaffi og spjall.
8. ágúst - Söguganga á Kirkjubæjarklaustri. Þættir úr sögu Kirkjubæjarklausturs í hinsegin ljósi.

Eldgjá, Hrauneyjar, Lakagígar & Nýidalur - Vatnajökulsþjóðgarður
Fræðslutímabil: 15. júlí - 15. ágúst
Eldgjá
Hvernig stækkar Ísland?
Bílastæðið í Eldgjá
Alla daga kl. 11:00
Lengd: 1 klst.
Gengið eftir botni Eldgjárinnar áleiðis að Ófærufossi.
Nýidalur
Hvar eru þessi víðerni?
Við skála FÍ í Nýjadal
Alla daga kl. 9:30
Lengd: 1 klst.
Genginn fræðslustígur sem liggur frá skálasvæðinu, rætt um víðernin frá ýmsum hliðum.
Lakagígar
Fegurð og hörmungar, áhrif Skaftárelda
Bílastæðið við Laka
Alla daga kl. 13:00
Lengd: 1 klst.
Gengið upp á fjallið Laka og sagt frá sögu Skaftárelda.


Dyrhólaey og Skógafoss
Fræðslutímabil 15. júní - 15. ágúst
Dyrhóley
Vitinn á Háey
Miðvikudaga og föstudaga frá kl. 11:00 - 12:00
Landvörður býður gestum uppá stutta fræðslu um svæðið, meðal annars um jarðfræði, fuglalíf, sjósókn á svæðinu og náttúruvernd
Skógafoss
Útsýnispallur við Skógafoss
Laugardaga kl. 13:00
Lengd: 1 klst
Gengið verður upp frá útsýnispalli við Skógafoss upp meðfram Skógá framhjá Hestavaðsfossi upp að Fosstorfufossi. Lögð verður áhersla á eldgosgos í Eyjafjallajökli og áhrif þess á nærsamfélagið, gönguleiðina yfir Fimmvörðuháls og tröll í gilinu við Fosstorfufoss.
Viðburðir
13. september - Haustganga á Skógaheiði klukkan 11:00
16 km. ganga upp meðfram Skógánni uppað friðlandsmörkum. Farið er sömu leið til baka og notið fallegra haustlita á Skógaheiði og njóta þess að skoða fjölmarga fossa á þessari stórkostlegu gönguleið.

Friðland að Fjallabaki
Fræðslutímabil 1. júlí- 15. ágúst
Óbyggðirnar kalla
Við FÍ skálann
Alla daga nema mánudag og þriðjudag kl. 12:00
Lengd: 1,5 klst
Gengið um Laugahraun og endað við hverasvæði við rætur Brennisteinsöldu. Fjallað um jarðsögu svæðisins, viðkvæmt gróðurlífið og samspil manns og náttúru.

Þjórsárdalur
Tímabil 15. júlí - 15. ágúst
Perlur Þjórsárdals
Stöng, bílastæði
Alla daga klukkan 14:00
Lengd: 1 klst
Gengið frá Stöng yfir í Gjánna að Gjáarfossi, til baka og upp úr Gjánni austan megin og niður að Stöng.

Kerlingarfjöll
Fræðslutímabil 1. júní - 30. ágúst
Viðvera landvarða
Hálendismiðstöðin
Alla daga frá kl. 9:00 til 10:00
Landvörður býður gestum uppá stutta fræðslu um svæðið. Upplýsingar um gönguleiðir veður færð og annað áhugavert.

Gullfoss & Geysir
Fræðslutímabil 15. júní - 15. ágúst
Viðvera landvarða
Geysir upplýsingamiðstöð
Frá kl. 12:00 til 15:00
Upplýsingar um gönguleiðir, veður, færð og annað áhugavert.

Suðvesturland
25. október
Stefnumót við landvörð
Grótta - bílastæði
Klukkan 11:00
Þér er boðið á stefnumót við landvörð í friðlöndin Gróttu og Bakkatjörn á fyrsta vetrardegi, laugardaginn 25. október. Gangan tekur 1-1,5 klst. Hvað gerðist fyrir rúmum 200 árum sem breytti ásýnd Seltjarnaness? Á þessu stefnumóti er rölt um svæðið og boðið upp á fróðleik um söguna, lífríkið og hækkun sjávar.
5. nóvember
Stefnumót við landvörð
Kópavogskirkja
Klukkan 12:00
Þér er boðið á stefnumót við landvörð í náttúruvættinu Borgum í Kópavogi miðvikudaginn 5. nóvember. Gangan tekur 30 mínútur. Hver eru ummerki hinnar löngu liðnu ísaldar í Borgum? Á þessu stefnumóti er stutt rölt um svæðið og boðið upp á fróðleik um ísöldina og mikilvægi náttúruverndar.

Vesturland
Fræðslutímabil 1. júní - 20. ágúst
Viðvera landvarða
Grábrók
Alla þriðjudaga
Tímasetning: frá kl. 13:00 til 16:00
Upphafsstaður: Grábrók
Landvörður býður gestum uppá stutta fræðslu um svæðið.
Viðvera landvarða
Hraunfossar og Barnafossar
Alla miðvikudaga
Tímasetning: frá kl. 13:00 til 16:00
Upphafsstaður: Bílastæðið við Hraunfossa
Landvörður býður gestum uppá stutta fræðslu um svæðið.

Snæfellsjökulsþjóðgarður
Barnastundir
Hellissandur
Alla föstudaga frá 4. júlí-14. ágúst kl 11:00
Lengd: 40 mínútur (fyrir alla fjölskylduna)
Fræðslugöngur
Sjá nánar í viðburðir
Tímabil: 15. júní - 16. september
Sérgöngur alla fimmtudaga (nema 16. sept) kl 14:00 á þessu tímabili
Malarrif
Gestastofan Malarrif
Fræðsluganga með landverði frá Malarrifi að lóndröngum alla:
Laugardaga, sunnudaga, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga.
kl. 13:00
Viðburðir
25. júní - Fuglalíf á Svalþúfu– fuglaskoðun með landverði.
28. júní - Afmæli þjóðgarðsins. Viðburður á Malarrifi.
2. júlí - Sagan við ströndina – Gönguferð um Djúpalón og Dritvík.
9. júlí - Jökullinn kallar – Ganga að Snæfellsjökli með landverði.
16. júlí - Vatnsborgir– lengri ganga með landverði á Öndverðanesi.
23. júlí - Eyrarhringurinn. Lífríki og minjar.
30. júlí - Á mörkum hafs og hrauns - ganga milli Arnarstapa og Hellna.
31. júlí - Alþjóðadagur landvarða.
6. ágúst - Mannlíf og minjar - Gufuskálar með landverði.
13. ágúst - Fjallið og fjarlægðin - Ganga á Hreggnasa.
20. ágúst - Sögur og náttúra - lengri ganga með þjóðgarðsverði á Búðum.
16. september - Haustlitaganga á Rauðhól – Dagur íslenskrar náttúru.

Sunnanverðir Vestfirðir
Fræðslutímabil 14. júní - 17. ágúst
Brjánslækur
Sýning um Surtarbrandsgil í gamla prestbústaðnum á Brjánslæk er opin daglega á tímabilinu 14. júní – 17. ágúst. Boðið upp á göngur í fylgd landvarðar í gilið alla þriðjudaga, miðvikudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14:00.
Viðburðir
4. Júlí - Sjósókn og sjóskaðar
Mæting í Geldingarskorardal klukkan 13:00, lengd: 3,5 klst.
25. júlí - Lambagil og austurbakki Vatnadalsvatns
Bílastæðið við Þingmannaá, klukkan 13:00, lengd: 4 klst.
Ganga meðfram Vatnsdalsvatni.
18. Júlí - Hittu heimaverur
Mæting við Bjargtanga, klukkan 13:00, lengd: 2 klst.
11. ágúst - Fossaganga í friðlandinu Vatnsfirði
Bílastæðið við Lómatjarnir, klukkan 10:00, lengd: 3 klst
Gengið verður inn Vatnsdal og fossar skoðaðir. Þátttakendur hittast á bílastæði við Lómatjarnir við Vatnsdalsvatn þar sem sameinast verður í bíla áður en keyrt er inn í Vatnsdal. Gangan hefst við bílastæði í botni dalsins.
15. Ágúst - Sjósókn og sjóskaðar
Mæting í Geldingarskorardal, klukkan 13:00, lengd: 3,5 klst.

Hornstrandir
Auglýst síðar

Mývatnssveit
Tímabil 10. júní - 20. ágúst
Fjölskyldustund á Gíg
Gestastofan Gígur
Alla daga kl. 15:00
Lengd: 30 mín.
Hittumst á gestastofunni Gíg, eigum saman góða stund þar sem við rýnum saman í hið stóra og smáa.
Dimmuborgir
Landslag og þjóðsögur
Dimmuborgir, inngangur
Alla daga kl. 10:00
Lengd: 1 klst.
Landvörður býður gestum í létta göngu um hinar einstöku hraunmyndanir Dimmuborga. Gestir fræðast um jarðfræði og þjóðsögur og tengsl þeirra.
Skútustaðagígar
Sambýli manns og náttúru
Gígur gestastofa
Alla daga kl. 14:00
Lengd: 1 klst.
Gengið með landverði um Skútustaðagíga. Gestir heyra um hvernig náttúran og samfélag móta hvort annað.
Kálfaströnd
Hraunið, vatnið og lífið
Kálfaströnd, bílastæði
Alla daga kl. 17:00
Lengd: 1 klst.
Gengið um friðsælt umhverfi Kálfastrandar. Landverðir deila með gestum þekkingu sinni og ástríðu fyrir hinu einstaka lífríki Mývatns.
Viðburðir
20. júní
Fuglaskoðun í Friðlandi Svarfdæla
Olís Dalvík
Klukkan: 13:00
Lengd: 2 klst.
Gengið með landverði frá Olís á Dalvík að Hrísatjörn og fræðst um þá fugla sem sjást
21. júní
Dagur hinna villtu blóma
Lögð verður áhersla á blómaskoðun í öllum föstum göngum dagsins
31. júlí
Alþjóðadagur landvarða
Allar fastar göngur verða með öðru sniði í tilefni dagsins
8. ágúst
Gleðiganga
Höfði, bílastæði
Klukkan: 13:00
Lengd: 1 klst.
Gengið með landverði um Höfða og fjölbreytileikanum fagnað í allri sinni mynd.
16. september
Dagur íslenskrar náttúru
Auglýst síðar
Klukkan: 16:00
Lengd: 2 klst
Gengið með landverði í Mývatnssveit í tilefni dags íslenskrar náttúru. Staðsetning auglýst síðar.


Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður
Tímabil 15. júní - 15. ágúst
Barnastund
Tjaldsvæði í Ásbyrgi
Alla daga kl. 11:00
Lengd: 45 mín
Fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Leikir og náttúruskoðun með landverði. Foreldrar velkomnir með. Hittumst hress og kát!
Lykillinn að Gljúfrum
Gljúfrastofa
Alla daga í júlí á milli kl. 14:00-15:00
Landvörður tekur á móti gestum og segir frá undraveröld Jökulsárgljúfra.
Kvöldrölt í Ásbyrgi
Við þjónustuhús á tjaldsvæði, nema annað sé auglýst
Alla daga kl. 20:00 (1. júlí -15. ágúst)
Lengd: um 1 klst.
Kvöldrölt um nánasta umhverfi Ásbyrgis þar sem landvörður fjallar til að mynda um jarðfræði, gróður og dýralíf.
Vesturdalur
Hljóðaklettarölt
Bílastæði við Hljóðakletta
Alla daga í júlí kl. 14:00
Lengd: um 1 ½ klst
Gengið er með landverði um Hljóðakletta og rýnt í landmótunina, forvitnilegar jarðmyndanir, vafna stuðla og býkúpuveðraða kletta, og hella.
Viðburðir
23. júlí - Svínadalsganga klukkan 13:00
Upphafsstaður: landvarðahús í Vesturdal. Gengið er um Svínadal þar sem búseta, ferðalög og náttúra í dalnum eru umfjöllunarefni.


Askja, Holuhraun & Herðubreiðarlindir - Vatnajökulsþjóðgarður
Tímabil 15. júlí - 15. ágúst
Askja
Hálendiskyrrð & kraftar
bílastæði við Vikraborgir
Alla daga kl. 13:00
Lengd: 1 - 1 ½ klst
Gengið er að Víti (2,4 km) og rýnt í jarðfræði Öskju og Dyngjufjalla, krafta og dulúð - og örlagaríkar heimsóknir manna.
Holuhraun
Land í mótun
Landvarðahús í Dreka
Alla daga kl. 9:30
Lengd: 45 mín + 40 mín akstur
Holuhraun (2014-2015) myndaðist í stærsta hraungosi á Íslandi í 230 ár. Fjallað er um rannsóknir á svæðinu og eldvirkninni og megineldstöðvum í kring gerð skil, ásamt sambýlinu og nálægðinni við Bárðarbungu. Ekið í samfloti að Holuhrauni frá landvarðahúsi.
Herðubreiðarlindir
Vin í eyðimörkinni
Herðubreiðarlindir, Þorsteinsskáli
Alla daga kl. 9:00
Lengd: 45 mín
Í aldaraðir hafa Herðubreiðarlindir verið griðastaður lífs mitt í svartri hraunbreiðu Ódáðahrauns. Gengið er um lindirnar gróðursælu og rýnt í hið smáa í náttúrunni sem og öflin sem mynduðu hraunið, lindirnar og Herðubreið.
Viðburðir
10. júlí
Knebelsganga
Klukkan 13:00, 1-1 ½ klst, Vikraborgir.
Knebelsganga er haldin árlega til minningar um Þjóðverjana Knebel og Rudloff sem hurfu sporlaust við jarðfræðirannsóknir við Öskjuvatn þennan dag árið 1907. Í göngunni er einnig sögð ferðasaga Inu von Grumbkow, unnustu Knebels, sem ferðaðist að Öskjuvatni árið 1908 til þess að vitja unnusta síns.
31. júlí
Alþjóðadagur landvarða
Landverðir bjóða upp á kaffi og spjall í landvarðahúsinu í Drekagili kl. 15-17, og fræðslugöngu upp á strýtu við Drekagil kl. 18 (30 mín). Rýnt í fjallahringinn og jarðfræðina.
Geimfaraganga
Drekagil
Klukkan 20:00, 2-3 klst
Kvöldganga í (astro)Nautagil, á svæði sem oft hefur verið líkt við tunglið. Saga geimfaraheimsóknanna er rifjuð upp og margbrotin tengsl svæðisins við stjörnugeiminn dregin fram í tungsljósið.


Snæfellsstofa & Hengifoss - Vatnajökullsþjóðgarður
Tímabil 15. júní - 15. ágúst
Barnastundir
Snæfellsstofa
Alla daga klukkan 14:00
Lengd: 45 mín
Fyrir krakka . Leikir og náttúruskoðun með landverði. Hittumst hress og kát!
Hengifoss
Dropinn holar steininn
Bílastæði við Hengifoss
Alla virka daga klukkan 10:00
Lengd: 1 klst
Gengið að Litlanesfossi og fjallað um jarðfræði og sögu svæðisins. Litlanesfoss er umlukinn stuðlabergi en ofar í gilinu trónir Hengifoss, annar hæsti foss landsins og einn vinsælasti ferðamannastaður Austurlands.
Tímabil 15. júní - 31. ágúst
Viðvera landavarðar
Hálslón - Kárahnjúkar
Fimmtudaga og laugardaga frá klukkan 12:00 til 16:00.
Landvörður veitir upplýsingar og fræðslu til gesta.


Snæfell, Kverkfjöll & Hvannalindir - Vatnajökulsþjóðgarður
Tímabil 15. júlí - 15. ágúst
Snæfell
Kvöldstund með landverði
Snæfellsskáli
Alla daga kl. 20:00
Lengd: 1 klst
Landverðir bjóða í kvöldspjall um fjölbreytta náttúru og sögu Snæfellsöræfa. Fræðslan fer fram í nágrenni Snæfellsskála og tekur á sig ýmsar myndir. Ef aðstæður leyfa er kveikt upp í eldstæði og þjóðsögur tengdar svæðinu rifjaðar upp - sannkallaður sagnaeldur.
Kverkfjöll
Eldur og ís
Bílastæði við Kverkjökul
Alla daga kl. 10:00
Lengd: 45 mín
Ganga hefst við jökulsporð Kverkjökuls en þar hefur áin Volga runnið undan jöklinum í aldanna rás og myndað íshelli. Rýnt er í samspil eldsvrknis Kverkfjalla og jökulsins sem umlykur þau, en óvíða er samspil elds og íss jafn greinilegt. 10 mínútna akstur er frá Sigurðarskála að bílastæðinu.
Hvannalindir
Griðastaður í gróðurvin
Bílastæðið við Kreppuhrygg
Alla daga kl. 13:00
Lengd: 1 klst
Hálendisvinin í Hvannalindum hefur löngum veitt viðkvæmu plöntu- og dýralífi skjól, mitt í hrjóstugu landsvæði Krepputungu. Gestir fræðast um lífsbaráttuna á þessum afskekkta stað og rústir útilegumanna frá 18. öld.
Viðburðir
31. júlí
Alþjóðadagur landvarða (viðburður auglýstur síðar)

Austurland
23. júní - Fjölskylduganga í Hólmanesi
Mæting á bílastæðinu á Hólmahálsi milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
Gengið er frá Hólmahálsi meðfram innri Hólmaborg í Urðarskarð og þaðan hring um ytri Hólmaborg. Á leiðinni skoðum við m.a. Sauðahelli, Ögmundargat og Gránubás.
31. júlí - Alþjóðadagur landvarða
Samspil náttúru og vísinda, Helgustaðanáma, klukkan 13:00, lengd: 1 ½ klst
Fjölskylduganga með landvörðum um Helgustaðanámu. Áhrif silfurbergs á framför vísinda.
24. júlí & 15 ágúst - Fjölbreytileiki náttúrunnar, bílastæði á Hólmahálsi, klukkan 13:00, lengd: 2 klst..
Genginn hringur í kringum borgirnar í Hólmanesi og þreifað á fjölbreytileika náttúrunnar.