Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Varptími fugla í Dyr­hóla­ey er hafinn

Dyrhólaey er lokuð á tímabilinu 1. maí til 25. Júní 2026 frá kl. 19:00 til 09:00 næsta morguns vegna fuglavarps.

28.apríl 2026

Lundi með sandsíli í kjaftinum

Dyrhólaey er friðlýst meðal annars vegna fuglalífs svæðisins. Náttúruverndarstofnun hefur heimild til að takmarka umferð um eyjuna á varptíma.

Dyrhólaey verður því lokuð á tímabilinu 1. maí til 25. Júní 2026 frá kl. 19:00 til kl. 09:00 næsta morgun.

Gestir eru minntir á að halda sig innan merktra stíga og sýna fuglalífinu sérstaka varkárni á varptíma.

Margir fallegir fuglar eiga heimkynni í Dyrhólaey og þar ber helst að nefna lundann, fýlinn, kríu, langvíu, skúm, heiðlóu og jaðrakan. Dyrhólaey var friðlýst árið 1978 og hefur landvörður búsetu á svæðinu allt árið um kring og sér um innviðin, verndun náttúrunnar og fræðslu til gesta.

Mynd með frétt: Jóhann Óli Hilmarsson

Nánari upplýsingar um Dyrhólaey

Upplýsingar um gönguleiðir, dýralíf og náttúruminjar