Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvang á Teigarhorni og náttúruvættið Teigarhorn hefur nú verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.
Teigarhorn var fyrst friðlýst sem náttúruvætti árið 1975 með auglýsingu nr. 518/1975. Friðlýsingin var endurnýjuð með auglýsingu nr. 417/2013. Jafnframt var jörðin Teigarhorn friðlýst sem fólkvangur með auglýsingu nr. 416/2013 í apríl 2013.
Friðlýsing er í samræmi við 48 gr. og 52. gr laga um náttúruvernd sem samsvarar alþjóðlegum verndarflokki III og V hjá IUCN.
Áætlunin er unnin af samstarfshópi en í hópnum sitja ásamt fulltrúum Náttúruverndarstofnunar, fulltrúi landeigenda, fulltrúi Náttúrufræðistofnunar og fulltrúi Múlaþings.
Eins er áætlunin unnin í góðu samstarfi við aðrar stofnanir s.s. Minjastofnun og Þjóðminjasafn Íslands. Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaráætlun til þriggja ára.
Áætlunin er sett fram í samræmi við 81. gr laga nr. 60/2013 um Náttúruvernd. Nánari upplýsingar er að fá hjá svæðissérfræðingi, Láru Björnsdóttur, lara.bjornsdottir@nattura.is eða sérfræðingi Sif J. Ástudóttur, sif.j.astudottir@nattura.is
Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni en aðkoma hagsmunaðila er mikilvægur þáttur til að skapa sátt um daglegan rekstur og framtíð friðlýstra svæða.
Athugasemdum skal skilað með tölvupósti til Náttúruverndarstofnunar (nattura@nattura.is) eða bréfleiðis með utanáskriftina Náttúruverndarstofnun, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur.
Skilafrestur athugasemda er til og með 11. maí 2026.
