Umhverfisstofnun, fyrirrennari Náttúruverndarstofnunar, hefur sinnt sjálfboðaliðastarfi í náttúruvernd allt frá stofnun. Verkefnið Sjálfboðaliðar Náttúruverndarstofnunar felur í sér fjölbreytt störf á friðlýstum svæðum víða um land, þar sem þátttakendur leggja sitt af mörkum til að vernda og efla náttúruna.
Fyrstu sjálfboðaliðarnir sem komu til starfa árið 1978 í Skaftafelli og á Gljúfrum, unnu að margvíslegum verkefnum á sviði landverndar og uppbyggingar. Þarna var lagður grunnur að því starfi sem síðar fylgdi. Þeir unnu á nokkrum stöðum á landinu og meðal annars byggðu þeir hleðsluvegg umhverfis nýbyggt landvarðarhús í þjóðgarðinum sem þá hét við Jökulsárgljúfur en er í dag Vatnajökulsþjóðgarður.
Verkefnið hefur undanfarin áratug verið að hluta til samstarfsverkefni við erlend sjálfboðaliðasamtök The British Conservation Volunteers (BTCV) en er nú einungis undir Náttúruverndarstofnun sem vinnur einnig í samstarfi við íslenska framhaldsskóla.
Frá árinu 1996 til 2017 hafa sjálfboðaliðar unnið 6.991 vinnudag á yfir 60 friðlýstum svæðum um allt land. Á fyrstu árunum komu flestir þátttakendur erlendis frá, en árið 2013 hófst samstarf við íslenska framhaldsskóla. Hlutfall íslenskra sjálfboðaliða jókst þá úr 1% í 21%, og hefur það samstarf reynst bæði gefandi og innblástursríkt.

Sjálfboðaliðar sumarið 1978.
Sjálfboðaliðar Náttúruverndarstofnunar starfa á friðlýstum svæðum og svæðum á náttúruminjaskrá þar sem þeir styðja við landverði og náttúruvernd. Hlutverk þeirra er ekki að taka að sér hefðbundin launuð störf heldur að leggja sitt af mörkum til að endurheimta, viðhalda og vernda náttúru landsins, þar á meðal landslag, gróður, dýralíf og líffræðilega fjölbreytni.
Verkefnin eru unnin með einföldum verkfærum, oft á afskekktum svæðum. Sjálfboðaliðarnir öðlast dýrmæta reynslu sem getur nýst þeim í námi og starfi. Verkefnið hefur einnig mikilvægt félagslegt gildi og tengir saman fólk frá Íslandi og öðrum löndum sem deilir áhuga á náttúruvernd.
Árið 2017 tók Umhverfisstofnun, forveri Náttúruverndarstofnunar, í fyrsta sinn þátt í „Grænni helgi“, alþjóðlegum viðburði þar sem íslenskir og erlendir sjálfboðaliðar unnu saman að viðhaldi göngustíga í Reykjanesfólkvangi. Slík verkefni hafa átt þátt í að efla sjálfboðaliðastarf í náttúruvernd hér á landi.
Fjölmargir starfsmenn Náttúruverndarstofnunar koma að sjálfboðaliðastarfinu, meðal annars umsjónarmenn, landverðir og liðsstjórar sem skipuleggja verkefni, sjá um þjálfun og tryggja öryggi hópanna. Margir liðsstjórar snúa aftur ár eftir ár og hafa byggt upp mikla reynslu sem þeir miðla áfram til nýrra sjálfboðaliða.
Sjálfboðaliðastarfið á sér jafnframt langa sögu alþjóðlegs samstarfs. Umhverfisstofnun tók meðal annars virkan þátt í samstarfi innan EUROPARC Federation og Náttúruverndarstofnun byggir áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem hefur skapast í verkefninu. Í gegnum árin hafa stjórnendur og sjálfboðaliðar skipst á þekkingu og reynslu milli landa og íslenska verkefnið hefur orðið fyrirmynd að sjálfboðaliðastarfi erlendis, meðal annars í Líbanon.
Á síðustu fjórum áratugum hafa yfir 3.000 einstaklingar tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi í náttúruvernd á vegum Náttúruverndarráðs, Umhverfisstofnunar og nú Náttúruverndarstofnunar. Margir þeirra hafa síðar starfað að náttúruvernd, bæði hér á landi og erlendis. Verkefnið hefur þannig ekki aðeins stuðlað að vernd íslenskrar náttúru heldur einnig byggt upp þekkingu, reynslu og tengsl milli fólks víða um heim.
