Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Sértækar reglur um notkun dróna á friðlýstum svæðum

Á mörgum friðlýstum svæðum er notkun dróna takmörkuð og jafnvel óheimil nema með leyfi Náttúruverndarstofnunar. Undanskilið banninu eru leitar- og björgunaraðgerðir og starfsemi Landhelgisgæslunnar og annara stofnana sem sinna rannsóknum og eftirlitshlutverki.

Umsókn um leyfi til drónaflugs í afþreyingaskyni

Hægt er að sækja um leyfi til notkunar dróna í afþreyingarskyni í þjónustugátt Náttúruverndarstofnunar.

Á mörgum friðlýstum svæðum gilda sértækar reglur og tilmæli vegna dróna og þyrluflugs

Tvær hvítar rjúpur sitja á steini
Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Gæta verður að því að trufla ekki upplifun gesta með drónaflugi

Hávella á flugi yfir tjörn
Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Drónaflug er víða bannað á varptíma fugla

Á friðlýstum svæðum má fljúga dróna á ábyrgan og öruggan hátt, svo náttúran og dýralífið njóti verndar á meðan.

Á friðlýstum búsvæðum fugla þarf að hafa sérstaka aðgát samkvæmt lögum um náttúruvernd.

Hvort leyfi þurfi á eftirfarandi stöðum er háð árstíð, umfangi og tegund verkefnis. Hafðu samband við Náttúruverndarstofnun nattura@nattura.is fyrir frekari upplýsingar.

  • ­­Eldey - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Náttúruverndarstofnunar
  • ­­Friðland Svarfdæla
  • ­Grótta - Friðlandið er lokað 1. maí-15. júlí
  • ­Grunnafjörður
  • ­Guðlaugstungur
  • ­Hrísey í Reykhólahreppi - Óheimilt er að fara í eyna 15. apríl - 15. júlí án leyfis Náttúruverndarstofnunar
  • ­­­­Melrakkaey - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Náttúruverndarstofnunar
  • ­Mývatn og Laxá
  • ­Oddaflóð
  • ­Salthöfði og Salthöfðamýrar - Ekki má nota vélknúin tæki í friðlandinu nema í sambandi við hefðbundna nýtingu þess
  • ­Skrúður - Óheimilt er að fara í eyna án leyfis Náttúruverndarstofnunar
  • ­­Vestmannsvatn