Náttúruverndarstofnun tók þátt í hátíðarhöldunum og kynnti verkefnið Mýrarlíf, umfangsmikið samstarfsverkefni sem miðar að endurheimt votlendis og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Náttúruverndarstofnun er ein af sjö þátttakandi í verkefninu, sem er leitt af Landbúnaðarháskóla Íslands.
Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar á Vesturlandi veitti gestum fræðslu um mikilvægi votlendis og kynnti jafnframt önnur friðlýst svæði á Vesturlandi.
Gestir fengu tækifæri til að sjá hvernig votlendi virkar með einföldu fræðslulíkani sem vakti mikla athygli. Þá var einnig boðið upp á tímabundin fuglahúðflúr af jaðrakan, lóuþræl og stelk. Þessar þrjár fuglategundir eru einkennistegundir Mýrarlífsverkefnisins og nutu húðflúrin mikilla vinsælda meðal yngstu gestanna.
Náttúruverndarstofnun þakkar öllum fyrir komuna.
Við hlökkum til að sjá ykkur að ári.
Fleiri myndir frá hátíðinni má finna á samfélagsmiðlum:
-2000x1001.png&w=3840&q=80)