Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar á Suður- og Suðvesturlandi með sérstaka áherslu á Friðland að Fjallabaki, Dyrhólaey og Þjórsárdal.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir umdæmisstjóra á svæðinu. Um er að ræða vaktavinnu út á svæðum í tengslum við meginstarfsstöð á Hvolsvelli. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn landvarða og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna
- Annast þjálfun og móttöku landvarða
- Sinnir almennri landvörslu eftir þörfum
- Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu
- Vinnur að öryggismálum
- Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi á innviðum
- Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði
Hæfniskröfur:
- Landvarðaréttindi
- Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
- Geta til að þróa hugmyndir og verklag
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
- Færni í miðlun upplýsinga
- Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
- Almenn ökuréttindi
- Reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur
- Verkþekking er kostur
- Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur
- Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.
Um Náttúruverndarstofnun:
Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jón Guðmundur Valgeirsson, Umdæmisstjóri
Tölvupóstur: jon.valgeirsson@nattura.is
