Náttúruverndarstofnun stendur fyrir opnun íbúafundi um endurskoðun verndaráætlunar Mývatns og Laxár þann 21. apríl kl. 16:30-18:30. Fundurinn verður haldinn í Skjólbrekku í Mývatnssveit og á dagskrá verður kynning á vinnslu verndaráætlunarinnar og starfshópnum sem leiðir verkefnið. Í kjölfarið verður vinnustofa þar sem þáttakendur geta komið á framfæri skoðunum sínum á ýmsum viðfangsefnum sem áætlunin snertir á.
Mývatn og Laxá eru vernduð samkvæmt lögum nr. 97/2004. Markmið laganna er að stuðla að náttúruvernd í samræmi við sjálfbæra þróun og tryggja að vistfræðilegu þoli svæðisins verði ekki stefnt í hættu af mannavöldum. Tekur verndunin til Mývatns og Laxár með eyjum, hólmum og kvíslum, allt að ósi árinnar við Skjálfandaflóa, ásamt 200 metra breiðum bakka meðfram Mývatni öllu og Laxá báðum megin.
Frekari upplýsingar, kynningar og fundargerðir má nálgast á síðu verkefnisins: http://www.nattura.is/myvatn-og-laxa
