Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Drög að stjórn­unar- og vernd­ar­áætl­un fyrir frið­land­ið Surtsey

Drög hafa verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

15.maí 2026

Surtsey

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Surtsey hafa verið lögð fram til kynningar næstu 6 vikurnar.

Náttúruverndarstofnun, ásamt samstarfshópi skipuðum fulltrúum frá Vestmannaeyjabæ, Náttúrufræðistofnun, Surtseyjarfélaginu og Hafrannsóknarstofnun, hefur unnið tillögu að endurskoðaðri stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Surtsey. Tillaga að áætluninni er nú lögð fram til kynningar skv. 3. mgr. 81. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.

Surtsey var upphaflega friðlýst sem friðland árið 1965 í þágu vísindarannsókna. Friðlýsingin hefur verið endurnýjuð þrisvar sinnum, þ.e. árin 1974, 2006 og 2011. Árið 2008 var hluti friðlandsins skráður á heimsminjaskrá UNESCO.

Megin markmið friðlýsingarinnar er að tryggja að þróun eyjarinnar verði eftir lögmálum náttúrunnar sjálfrar. Tilgangur friðunarinnar er að tryggt verði að landnám plantna og dýra, framvinda lífríkis og mótun jarðmyndana verði með sem eðlilegustum hætti og truflun af völdum manna sem minnst. Friðlýsingin byggir m.a. á því að svæðið hefur hátt vísinda- og náttúruverndargildi á íslenskan og alþjóðlegan mælikvarða, þar eru heildstæðar og óraskaðar náttúruminjar sem endurspegla náttúrulega þróunarferla og eru afar viðkvæmar fyrir röskun.

Markmið með stjórnunar- og verndaráætlun er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki. Í áætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára.

Opinn kynningafundur um drögin verður haldinn í Eldheimum í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 21. maí nk. kl. 16:30. Fundinum verður streymt á Teams

Nánari upplýsingar veita Ingibjörg M. Bjarnadóttir ingibjorg.m.bjarnadottir@nattura.is og Ragnheiður Sigurðardóttir ragnheidur.sigurdardottir@nattura.is eða í síma 556-6800.

Drög að áætluninni liggja nú frammi til kynningar og er öllum frjálst að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum vegna hennar. Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum er til og með 3. júlí 2026.

Ábendingum og athugasemdum skal skilað með tölvupósti á netfangið nattura@nattura.is merkt Surtsey eða senda póst til Náttúruverndarstofnunar, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær.

Drög til kynningar

Drög að aðgerðaráætlun