Náttúruverndarstofnun kynnir, í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, sveitarfélagið Múlaþing og landeigendur Hjálpleysu, áform um friðlýsingu svæðisins Hjálpleysu í Skriðdal, í samræmi við 2. mgr. 38. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Um er að ræða dalinn Hjálpleysu og nærliggjandi vatnasvið Gilsár á Völlum, samtals um 26 km² svæði. Svæðið liggur innan jarðanna Stóra-Sandfells I og II, Grófargerðis, Tunghaga, Ásgarðs og Arnkelsgerðis. Tilefni friðlýsingaráformanna er ósk landeigenda um að svæðið verði verndað.
Mat Náttúrufræðistofnunar á verndargildi svæðisins leiðir í ljós að Hjálpleysa hefur hátt verndargildi. Jarðfræði svæðisins er metin sérstæð sem hluti af Þingmúlaeldstöðinni, kulnaðri megineldstöð sem hefur þýðingu í sögu jarðvísindanna og einkennist af fjölbreyttum jarðmyndunum, litskrúðugu landslagi og áberandi jarðmyndunum á borð við líparítáreyrar og Hjálpleysuhóla. Svæðið hefur jafnframt gildi vegna landslags, útivistar og fræðslu.
Til skoðunar eru þrír friðlýsingaflokkar fyrir svæðið: landslagsverndarsvæði, óbyggð víðerni og náttúruvætti. Endanleg ákvörðun um flokkun eða svæðaskiptingu liggur ekki fyrir og verður tekin síðar í ferlinu.
Undirbúningur friðlýsingarinnar er í höndum samstarfshóps sem í eiga sæti fulltrúar Náttúruverndarstofnunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sveitarfélagsins Múlaþings og landeigenda. Hópurinn hefur það hlutverk að vinna að umgjörð friðlýsingarinnar, þar á meðal afmörkun svæðisins og gerð friðlýsingarskilmála.
Kort sem sýnir afmörkun fyrirhugaðs náttúruverndarsvæðis er að finna í viðhengi við þessa frétt.
Þeir sem hafa ábendingar eða athugasemdir varðandi áformin eru hvattir til að koma þeim á framfæri við Náttúruverndarstofnun. Formlegt umsagnarferli er 4 vikur í samræmi við lög um náttúruvernd eða til 10. nóvember. Frekari kynning og umsagnarferli um tillögu að friðlýsingu mun fara fram á síðari stigum málsins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Örvar Hansson, sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun, í síma 55 66 800 eða á david.o.hansson@nattura.is.
