Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögur Náttúruverndarstofnunar um að veiðitímabil helsingja árið 2026 verði frá 1.–20. september um allt land.
Ákvörðunin byggir á nýjustu upplýsingum um stöðu Austur-Grænlandsstofns helsingja. Stofninn er metinn um 65.000 fuglar og er því yfir lágmarksstofnstærðarviðmiði sem kveðið er á um í stjórnunar- og verndaráætlunar stofnsins.
Með því að hefja veiðitímabilið 1. september um allt land er leitast við að beina veiðum fremur að þeim hluta stofnsins sem verpir á Íslandi. Jafnframt er komið til móts við bændur sem verða fyrir ágangi helsingja á ræktarlandi. Sölubann mun áfram gilda á helsingja og afurðum hans.
Hægt er að skoða stöðuskýrslu um stofnvöktun helsingja með því að ýta á hlekkinn hér fyrir neðan.
