Að beiðni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hófst vinna Náttúruverndarstofnunar við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir hreindýrastofninn í ársbyrjun 2026. Tilgangur vinnunnar er að endurskoða veiðistjórnunarkerfi hreindýra með því að greina helstu markmið stofnstýringarinnar og meta hvaða leiðir henta best til þess að ná þeim markmiðum. Áætlunin er samvinnuverkefni Náttúruverndarstofnunar og margra hagsmunaaðila sem málið snertir. Áætlað er að vinnan taki um eitt og hálft ár.
Þann 26. og 27. maí stóð stofnunin fyrir vinnustofu á Egilsstöðum þar sem helstu hagsmunaaðilar voru kallaðir að borðinu. Niðurstöður vinnustofunnar voru þær að hagsmunaaðilar vilja heldur ráðast í smærri umbættur á ýmsum hlutum kerfisins fremur en að kollvarpa því með róttækum breytingum. Almennt ríkir breið sátt um mikilvægi þess að viðhalda heilbrigðum hreindýrastofni og vistkerfum, tryggja sjálfbærar veiðar, auka gagnsæi í ákvarðanatöku og styrkja traust milli hagsmunaaðila.
Áætlað er að halda aðra vinnustofu í haust eða vetur með sömu aðilum. Þá munu liggja fyrir nákvæmari greiningar á niðurstöðum vinnustofunnar, svo sem mikilvægi markmiða, aðferðum til að ná þeim og hvaða málamiðlanir þarf að gera til þess.
Samantekt frá vinnustofunni:

