Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Veiði­tíma­bil rjúpu 2026

Náttúruverndarstofnun hefur sent inn veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpu árið 2026 til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.

13.júlí 2026

Tvær hvítar rjúpur sitja á steini

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Náttúruverndarstofnun hefur sent inn veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpu árið 2026 til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Tillögurnar byggja á stofnmati Náttúrufræðistofnunar og Dr. Fred Johnson (sjá skjal neðar í frétt) og stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem var undirrituð og staðfest af ráðherra árið 2024.

Tillögur Náttúruverndarstofnunar

Veiðitímabil rjúpu árið 2026 hefst föstudaginn 23. október á öllum veiðisvæðum. Veiði er heimil frá og með föstudegi til og með þriðjudags innan tímabils hvers veiðisvæðis. Því er óleyfilegt að veiða rjúpu miðvikudaga og fimmtudaga.

Tillögur Náttúruverndarstofnunar að fjölda veiðidaga (lengd veiðitímabils) eru eftirfarandi (sjá einnig í skjali fyrir neðan mynd):

Rjúpa veiðisvæði og tímabil 2026

Skipting veiðisvæða eftir landshlutum ásamt veiðitímabili hvers svæðis.

Veiðistjórnunarkerfið og takmarkanir

Líkt og áður segir eru tillögurnar byggðar á stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem var gefin út árið 2024. Þetta er því þriðja rjúpnaveiðitímabilið sem þetta veiðistjórnunarkerfi er notað, en helstu þættir þess eru ný aðlögunarhæf stofnlíkön, svæðaskipting (sjá mynd að ofan og kortasjá) og fastir stjórnþættir er varða vikudaga, heila daga o.s.frv. Veiðitímabil hvers svæðis er ekki háð öðrum svæðum heldur stjórnast af ástandi stofnsins innan svæðisins.

Minnt er á að sölubann er á rjúpu. Veiðar eru áfram óheimilar á Reykjanesi (Landnám Ingólfs).

Athugasemdir

Við vinnslu tillagnanna voru þær kynntar fyrir hagsmunaaðilum á fundi. Stefnt er að því að birta upptöku af fundinum á vefsíðu stofnunarinnar sem fyrst. Á fundinum komu fram sjónarmið sem gefa tilefni til frekari umræðu um hvernig þróa megi veiðistjórnina til framtíðar. Þau verða tekin með í endurskoðun sem ráðist verður í á komandi vetri með þátttöku allra hagsmunaaðila. Í því sambandi er lesendum bent á að skoða kaflann Þróun veiðistjórnunar á rjúpu, aftast í tillöguskjalinu sem hlekkjað er í ofar í fréttinni.

Hægt er að senda inn athugasemdir varðandi tillögurnar til og með 24. júlí  með því að senda tölvupóst á nattura@nattura.is. Þau sem hyggjast gera slíkt eru hvött til þess að kynna sér stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu áður en spurningar eru sendar inn þar sem hún útskýrir fasta stjórnþætti og aðferðafræði við ákvarðanatöku á lengd veiðitímabils.