Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson
Umsóknarfrestur um veiðileyfi fyrir hreindýr rann út á miðnætti þriðjudaginn 3. mars síðastliðinn. Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi laugardaginn 14. mars klukkan 14:00 í streymi á vef.
Fréttin verður uppfærð föstudaginn 13. mars með hlekk á streymi.
Kvóti ársins í ár eru 936 dýr, 499 kýr og 437 tarfar. Alls bárust 2900 umsóknir, en 4 voru ógildar.
Fyrirkomulag
Öll sem sóttu um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þau sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það þau sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi.
Vakin er sérstök athygli á að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en miðvikudaginn 15. apríl. Þetta er gert til að fyrr sé hægt að úthluta veiðileyfum af biðlista.
Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist fólk ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista
