Annars vegar er um að ræða Uppgjör áætlunar um refaveiðar 2023-2025 þar sem síðasta veiðitímabil er gert upp. Þar má m.a. finna upplýsingar um fjölda veiddra refa, markmið og áherslur, áætlanir sveitarfélaga um veiðarnar, uppgjör og greiðslu mótframlaga vegna veiðanna, mat á tjóni o.fl.
Hins vegar er um að ræða Áætlun um refaveiðar 2026-2028 þar sem greint er frá markmiðum og stöðu veiða, fjallað er um refastofninn og veiðiálag samkvæmt minnisblaði frá Ester Rut Unnsteinsdóttur, spendýravistfræðingi hjá Náttúrufræðistofnun og áætlanir sveitarfélaga um veiðar á ref 2026-2028.
