Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Tillögur að veiði­tíma­bili hels­ingja 2026

30.júní 2026

Helsingjar á flugi

Náttúruverndarstofnun leggur til að veiðitímabil helsingja árið 2026 verði frá 1.–20. september um allt land.

Tillagan byggir á nýjustu upplýsingum um stöðu Austur-Grænlandsstofns helsingja. Samkvæmt nýlegu mati er stofninn um 65.000 fuglar, en hefur verið á niðurleið frá því hann náði um 80.000 fuglum fyrir rúmum áratug. Stofninn er þó enn yfir viðmiðunarmarki, sem er 54.000 fuglar. Nú eru aðeins taldar um 1% líkur á að hann sé undir því marki.

Ísland og Bretland hafa samræmt stjórnun veiða á stofninum undanfarin ár. Samkvæmt nýjustu áhættumati teljast veiðar á allt að 4.250 fuglum samrýmast markmiðum stjórnunar- og verndaráætlunarinnar. Árið 2025 var stefnt að því að halda heildarveiði Íslands og Bretlands innan 3.250 fugla. Bráðabirgðatölur benda til að samanlögð veiði landanna hafi orðið um 2.000 fuglar og því vel innan þeirra marka sem lagt var upp með.

Með því að hefja veiðitímabilið 1. september um allt land er leitast við að beina veiðum fremur að þeim hluta stofnsins sem verpir á Íslandi. Jafnframt er með tillögunni komið til móts við bændur sem verða fyrir ágangi helsingja á ræktarlandi.

Tillögur stofnunarinnar í heild ásamt stöðuskýrslu fyrir helsingjastofninn árið 2026 má nálgast hér að neðan.

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson