Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Hrein­dýra­veiðar – Tarf­a­veiði­tíma­bil hefst 15. júlí

14.júlí 2026

Loftmynd af hreindýrahjörð

Tarfaveiðar hefjast á morgun, miðvikudaginn 15. júlí.

Lesa má daglegar fréttir um hreindýraveiðar hér.

Náttúruverndarstofnun vekur athygli á því að veturgamlir tarfar eru alfriðaðir. Tarfaveiði miðast því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.

Fram til 1. ágúst skal ekki veiða tarfa sem eru í fylgd með kúm þannig veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.

Veiðimenn á veiðisvæði 9 eru hvattir til að veiða tarfa vestast á svæðinu. Það er gert til að fækka dýrum á svæðinu og minnka líkurnar á því að þau fari vestur yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Það er einnig gert til að koma í veg fyrir gróðurskemmdir, ef dýrin verða of mörg á svæðinu.

Veiðileyfi

Nú ættu allir tarfaveiðimenn að hafa fengið veiðileyfi sín send með pósti. Ef leyfin berast ekki verða veiðimenn að hafa samband við Náttúruverndarstofnun sem fyrst.

Veiðileyfi á kýr verða send út um 20. júlí og ættu þá að hafa borist leyfishöfum fyrir upphaf veiðitíma á kúm sem hefst 1. ágúst.

Tilmæli við veiðar á kúm

Veiðimönnum er bent á að tvær fyrstu vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.

Veiðimenn eru minntir á að hafa skotvopnaleyfi, veiðikort og hreindýraveiðileyfið meðferðis.

Hreindýrafréttir

Náttúruverndarstofnun heldur úti dagbók þar sem fréttir um hreindýraveiðar hvers dags eru birtar samdægurs. Fréttirnar má nálgast í hlekknum hér að neðan eða með því að velja Veiði í stikunni efst á síðunni og svo Hreindýr og loks Hreindýrafréttir.