Náttúruverndarstofnun starfrækir samráðsnefndina sem er skipuð til þriggja ára. Í henni sitja tveir fulltrúar frá Náttúruverndarstofnun, annar þeirra formaður, og einn fulltrúi frá Bændasamtökum Íslands, Skotveiðifélagi Íslands (SKOTVÍS), Náttúrufræðistofnun, Samtökum náttúrustofa og frjálsum félagasamtökum á sviði náttúruverndar.

Hlutverk nefndarinnar
Nefndin stuðlar að styrkingu faglegrar veiðistjórnunar á villtum dýrum með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi, beitir sér fyrir innleiðingu verndar- og veiðiáætlana fyrir íslenska veiðistofna og þróar verklag og ferla til ákvarðanatöku um vernd og veiðar.
Starfsreglur nefndarinnar byggjast á 11. grein laga númer 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og verklagsreglum vegna ráðstöfunar tekna af sölu veiðikorta, sem settar voru af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu 2016.
Nefndin
Bjarni Jónasson
Formaður, Náttúruverndarstofnun
Skúli Þórðarson
Náttúruverndarstofnun
Arne Sólmundsson
Tilnefndur af SKOTVÍS
Róbert Arnar Stefánsson
Tilnefndur af Samtökum Náttúrustofa (Náttúrustofa Vesturlands)
Ásgeir Helgi Jóhannsson
Tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Jóhann Óli Hilmarsson
Tilnefndur af frjáls félagasamtökum á sviði náttúruverndar
Hálfdán Helgi Helgason
Tilnefndur af Náttúrufræðistofnun
