Fyrir veiðitegundir er mat á veiðitölum lykilforsenda sjálfbærra veiða. Tilgangurinn með því að veiðimenn skili veiðiskýrslum er því skýr: að tryggja að ákvarðanir í veiðistjórnun styðji við sjálfbærar veiðar til lengri tíma.
Þegar skráðar veiðitölur endurspegla raunverulega veiði hjálpa þær til við að greina á milli breytinga á stofnstærð sem stafa af veiðum annars vegar og náttúrulegra þátta hins vegar, svo sem veðurs, fæðuframboðs eða affalla yfir veturinn. Ef veiðitölur eru vanmetnar getur litið út fyrir að náttúruleg dánartíðni sé hærri en hún er í raun, sem getur að lokum leitt til minni ráðlagðrar veiði.
Skekkja í veiðitölum (sérstaklega vanskil á veiðiskýrslum) gerir áreiðanlega veiðistjórnun mun erfiðari. Hún eykur líkur á því að gripið sé til rangra veiðistjórnunaraðgerða, sem getur haft neikvæð áhrif bæði á villta stofna og möguleika til veiða. Það er því sameiginlegur hagur veiðimanna og annarra hagsmunaaðila að veiðar séu skráðar eins nákvæmlega og mögulegt er.
Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson
