Háfaveiðitímabil á lunda hefst nú á miðvikudaginn 1. júlí. Nýjustu rannsóknir benda til þess að staða íslenska lundastofnsins sé verri en áður var talið og að svigrúm til veiða sé afar takmarkað við núverandi umhverfisaðstæður. Nýjar stofngreiningar benda til þess að stofninn sé á áframhaldandi niðurleið, og væri það jafnvel án veiða. Þetta má fyrst og fremst rekja til hlýnunar sjávar og þar með minna fæðuframboðs.
Náttúruverndarstofnun hvetur bæði veiðimenn og neytendur til að gæta hófs. Þegar stofn villtrar tegundar er undir þrýstingi vakna jafnframt siðferðilegar spurningar um sölu villibráðar á veitingahúsum. Þótt hefð fyrir lundaveiðum eigi sér djúpar rætur er ástæða til að velta því fyrir sér hvort rétt sé að skapa eftirspurn eftir tegund sem á undir högg að sækja.
Jafnframt hafa nýjar niðurstöður úr neyslukönnunum varpað ljósi á að raunveruleg veiði gæti verið umtalsvert meiri en opinberar veiðitölur gefa til kynna. Ef þær vísbendingar reynast réttar eykst óvissa um áhrif veiða á stofninn sem dregur fram mikilvægi þess að byggja veiðistjórnun á traustum upplýsingum.
Sérfræðingar munu á næstu misserum halda áfram rannsóknum og greiningu á gögnum til að skýra betur stöðu lundastofnsins og umfang veiða. Þangað til frekari gögn liggja fyrir gefa núverandi niðurstöður tilefni til varfærni við nýtingu stofnsins.
Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson
