Útsending
Útdráttur fyrir hreindýraveiðileyfi fer fram laugardaginn kl. 14:00 og verður útsending sýnd í beinni.
Í ár verða dregin út 936 hreindýraleyfi, þar af 499 kýr og 437 tarfar.
Alls bárust 2.896 gildar umsóknir í útdráttinn og eru 134 veiðimenn á fimmskiptalista.
Að útdrætti loknum geta umsækjendur skoðað niðurstöðu og stöðu umsóknar sinnar á https://gogn.ust.is/
Þeir sem fá úthlutað leyfi þurfa að ganga frá greiðslu fyrir 15. apríl til að staðfesta leyfið.
