Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Eindagi greiðslu út­hlut­aðra hrein­dýra­veiði­leyfa er 15. apríl

Greiða þarf kröfu í heimabanka fyrir kl. 21:00 miðvikudaginn 15. apríl.

13.apríl 2026

Loftmynd af hreindýrahjörð

Náttúruverndarstofnun minnir á að greiða þarf kröfu vegna úthlutaðra hreindýraleyfa í heimabanka fyrir kl. 21:00 miðvikudaginn 15. apríl. Að þeim tíma liðnum hverfur krafan úr heimabankanum og þeir sem ekki hafa greitt innan frests teljast hafa hafnað úthlutuðu leyfi.

Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu á að vera sýnileg í heimabanka þeirra sem fengu úthlutun. Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar voru ekki sendir út á pappír.

Af gefnu tilefni bendir Náttúruverndarstofnun á mikilvægi þess að bíða ekki með greiðslu fram á síðustu stundu. Einnig er mikilvægt að ganga úr skugga um að greiðslur sem hafa verið skráðar í sjálfvirkar greiðslur fari í gegn á eindaga.