Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Vatns­fjörð­ur, Vest­ur­byggð

Í Vatnsfirði fékk Ísland nafn sitt samkvæmt Landnámu

Aðgengi og upplýsingar

Fagurt lífríkis- og landslagsverndarsvæði með fjölbreyttu fuglalífi, vötnum, ám, fossum, giljum og gljúfrum, minjum og menningarlandslagi. Á láglendi er friðlandið grænt og gróðursælt en hálendið býður upp á fögur og lítt röskuð víðerni.

Friðlýsing

Vatnsfjörður var friðlýstur sem friðland árið 1975. Markmið friðlýsingarinnar er að varðveita landslag, gróðurfar og dýralíf í Vatnsfirði.

Friðlandið er í landi höfuðbólsins Brjánslækjar og eyðijarða sem liggja undir því. Mörk þess eru við Þverá að vestan, síðan er í grófum dráttum fylgt vatnaskilum um Hornatær og Dynjandisheiði norður í Glámu. Þaðan suður á Þingmannaheiði og suðvestur í Hörgsnes sem markar fjarðarmynnið að austan.

Stærð friðlandsins er um 19.000 hektarar (190 km2)