Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Hrísey, Reyk­hóla­hreppi

Grösug og vogskorin eyja með ríkulegu fuglalífi úti fyrir Reykhólasveit þar sem fundist hafa 80 tegundir æðplantna.

Friðlýsing

Hrísey var friðlýst árið 1977. Friðlandið nær yfir Hrísey sjálfa og fjörur sem undir hana heyra, allt að 100 metrum frá meðalmörkum stórstraumsflóðs. Vegna fuglaverndar er umferð um eyjuna óheimil frá 15. apríl – 15. júlí. Á friðlandinu hvílir tvöföld friðun þar eð það er einnig innan verndarsvæðis Breiðafjarðar sbr. lög nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar. Auk þess er þar friðlýst æðarvarp. Hrísey er í einkaeigu.