Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Horn­strand­ir

Hornstrandir, Aðalvík, Rekavík bak Látur og Fljótavík ásamt hluta Jökulfjarða voru friðlýst sem friðland á Hornströndum árið 1975. Innan svæðisins eru að finna mikilfengleg fuglabjörg, einstakt gróðurfar og menningarminjar sem standa sem minnisvarðar um tíðaranda og búsetuhætti sem liðnir eru undir lok.  

Aðgengi & þjónusta

Hornstrandir eru magnað landsvæði nyrst á Vestfjörðum. Mörk friðlandsins eru um Skorarheiði milli Hrafnsfjarðar og Furufjarðar og nær friðlandið því yfir Hornstrandir og hluta af Jökulfjörðum, eða Sléttuhrepp og hluta af Grunnavíkurhreppi. 

Algengasta aðkomuleiðin á Hornstrandir er af sjó.  

Gestastofa fyrir friðlandið, Hornstrandastofa, er staðsett á Ísafirði. 

Tilkynningarskylda er inn á friðlandið til 15. júní ár hvert. Undanskildir tilkynningaskyldu eru land- og húseigendur á svæðinu. 

Skoða Hornstrandir á korti

Hér skal tilkynna sig inn á svæðið

Skoða þrívíddarkort af svæðinu

Gestastofa - Björnsbúð

Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og sýning um svæðið.

Hornstrandastofa
Silfurgata 1
400 Ísafirði

Sumaropnun (1. júní til 31. ágúst)  
Mánudaga til laugardaga frá klukkan 08:00-15:30 

Vetraropnun 
Opið eftir samkomulagi 

Sími: 665-2810 / Netfang: hornstrandastofa@nattura.is / Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur 

Aðgengi

Friðlýsing

Árið 1975 voru Hornstrandir, Aðalvík, Rekavík bak Látur og Fljótavík ásamt hluta Jökulfjarða friðlýst sem friðland. Friðlandið á Hornströndum eru 589 km2 að stærð og er staðsett á norðanverðum Vestfjörðum.

Samkvæmt skilgreiningu Alþjóða náttúruverndarsamtakanna IUCN, um flokkun friðlýstra svæða þá flokkast friðlandið á Hornströndum undir flokk Ib. Svæði í þeim flokki eru skilgreind sem víðfeðm óbyggða- eða eyðibyggðasvæði sem eru lítt eða ekkert röskuð af hálfu manna og hafa haldið sínum náttúrulegu einkennum. 

Markmið friðlýsingarinnar á Hornströndum er að vernda lífríki, jarðminjar og menningarminjar svæðisins. En eitt af aðal einkennum friðlandsins er hve afskekkt það er og lítið mótað af umsvifum og ágangi manna.  

 Friðlandið hefur hátt verndargildi bæði á íslenskan og alþjóðlegan mælikvarða þar sem svæðið er mikilvægt búsvæði fyrir fjölda fuglategunda auk þess sem friðlandið er eitt mikilvægasta búsvæði refa í Evrópu. 

Leiðarljós fyrir friðlandið á Hornströndum er að vernda víðfeðmt svæði með einstakri náttúru og dýralífi þar sem kyrrð ríkir og innviðir eru ekki áberandi. Á svæðinu skulu náttúrulegir ferlar vera ríkjandi án afskipta manna, með það að leiðarljósi að komandi kynslóðir hafi tækifæri til að njóta þess að upplifa slík svæði. 

Hornstrandanefnd

Hornstrandarnefn er starfandi samráðsnefnd um málefni friðlandsins á Hornströndum. Samkvæmt skipunarbréfi er hlutverk nefndarinnar m.a. að veita ráðgjöf um málefni friðlandsins, framkvæmdir á svæðinu, stefnu þess o.s.frv. Nefndin er skipuð fulltrúum tilnefndum af Ísafjarðarbæ, Landeigendafélagi Sléttu- og Grunnavíkurhrepps auk Náttúruverndarstofnunar. Friðlandið á Hornströndum heyrir undir starfstöð stofunarinnar á Ísafirði, þar starfar sérfræðingu að málefnum friðlandsins allt árið.

Fulltrúar Hornstrandanefndar: 

  • Kristín Ósk Jónasdóttir, Náttúruverndarstofnun, formaður 
  • Andrea Harðardóttir, Ísafjarðarbær 
  • Gauti Geirsson, Ísafjarðarbær 
  • Ingvi Stígsson, landeigendafélagi Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 
  • Margrét Katrín Guðnadóttir, landeigendafélagi Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 
  • Sölvi Sólbergsson, landeigendafélagi Sléttu- og Grunnavíkurhrepps